Selja tugi hjólhýsa á mánuði Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júlí 2014 08:00 Hjólhýsin seljast miklu betur en fellihýsi og tjaldvagnar. fréttablaðið/ vilhelm
Tuttugu og fimm hjólhýsi hafa verið nýskráð það sem af er júlí. Þar af er einungis eitt notað. Þetta kemur fram í tölum Samgöngustofu. Fjórtán tjaldvagnar hafa verið skráðir en einungis tvö fellihýsi. Sala á ferðavögnum, það er fellihýsum, hjólhýsum og tjaldvögnum, hefur verið í jafnvægi undanfarin þrjú ár. Hjólhýsin seljast best. Salan er þó hvergi nærri eins góð og hún var fyrir bankahrun. Auk nýskráðu hjólhýsanna seljast notuð hjólhýsi vel. Það eru einkum tveir aðilar sem selja ferðavagna hér á landi í dag, en það eru Víkurverk og Útilegumaðurinn. Víkurverk pantaði sextíu ný hjólhýsi inn fyrir sumarið og þau eru að verða uppseld. Kristín Anný Jónsdóttir, sölustjóri hjá Víkurverki, segist hafa orðið vör við söluaukningu í ár. „Það er mikil sala núna á nýjum hjólhýsum,“ segir hún. Mikil sala hafi verið bæði í júní og júlí. „Það eru eiginlega bara allir mánuðirnir búnir að vera góðir,“ segir hún.Kristín Anný JónsdóttirKristín Anný bendir samt á að leiðinlegt veður í sumar hafi orðið til þess að draga úr sölu á ferðavögnum. „Veðrið hefur áhrif og fólk hefur jafnvel komið og ætlað að skila lyklinum bara. Þegar það er endalaus rigning þá kemur uppgjöf í fólk. En fólk sækir þá líka meira í hjólhýsi. Það er bara þannig að fólk nennir ekki endalaust að vera með blautt fellihýsi,“ segir hún. Kristín Anný segir að vinsælustu hjólhýsin kosti 2–2,5 milljónir króna. „En hin seljast líka, fólk er mikið að skipta upp í dýrari,“ segir Kristín Anný og bætir því við að hjólhýsi seljist á alveg upp í sjö milljónir króna. Það er mikil sala á nýjum hjólhýsum og líka á notuðum. Kristín Anný segir að þótt hjólhýsin standi klárlega upp úr í sölu, hafi tjaldvagnar og fellihýsi einnig selst ágætlega á árinu. Þetta er í samræmi við fyrrgreindar tölur Samgöngustofu. Í júlímánuði voru 14 tjaldvagnar og tvö fellihýsi nýskráð. Á fyrri helmingi ársins voru 128 hjólhýsi, 27 tjaldvagnar og ellefu hjólhýsi nýskráð.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira