Uppreisnarmenn þverneita að hafa skotið vélina niður Jakob Bjarnar skrifar 24. júlí 2014 08:35 Borodai var í viðtali við BBC og hafnar öllum ásökunum sem snúa að MH17. ap
Leiðtogi uppreisnarmanna í Úkraínu, sem hliðhollir eru Rússum, segir í viðtali við BBC að hann og hans menn hafi ekki yfir að ráða Buk-eldflaugum, en talið er að skotfæri af þeirri tegundinni hafi grandað flugvél Malasíska flugfélagsins, með flugnúmeri MH17. Alexander Borodai, forsætisráðherra þess svæðis Úkraínu sem lýst hefur yfir sjálfstæði og er undir yfirráðum uppreisnarmanna, segir að sönnunargögn sem sýni annað séu fölsuð. Borodai vísar ásökunum alfarið á bug. En, eins og komið hefur fram fórust allir sem um borð í vélinni voru, alls 298 manns, þegar upp kom sprenging í henni og hún hrapaði til jarðar í austanverðri Úkraínu í síðustu viku. Uppreisnarmenn hafa af flestum verið taldir bera ábyrgð á því að hafa skotið vélina niður. Flestir farþega voru hollenskir en fyrstu líkin eru komin til Hollands og var tekið á móti þeim með viðhöfn í gær. Næsta vél með líkum þeirra sem eftir eru er svo væntanleg til Hollands í dag. Uppreisnarmenn hafa verið sakaðir um að umgangast líkin af virðingarleysi, eða að við þau hafi verið átt til að leyna sönnunargögnum, en því vísar Borodai jafnframt á bug í téðu viðtali.
MH17 Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira