Guðjón Valur má ekki segja hvert hann er að fara Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. febrúar 2014 08:00 Það bendir margt til þess að Guðjón sé á leiðinni til Spánar. Vísir/Bongarts „
Það er allt klappað og klárt hjá mér. Ég er búinn að fara í læknisskoðun og skrifa undir samning,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson en hann mun söðla um í sumar: Yfirgefa herbúðir Þýskalandsmeistara Kiel, en hvert er hann að fara? „Ég má því miður ekki segja það fyrr en í lok tímabilsins. Væntanlegir vinnuveitendur mínir báðu mig um að segja ekkert frá því fyrr en tímabilið er búið.“ Það hefur verið þrálátur orðrómur um að Guðjón sé á leið til spænska stórliðsins Barcelona. Staðarblaðið El Mundo Deportivo hélt því fram meðan á EM stóð að Guðjón Valur myndi ganga í raðir félagsins. Honum er ætlað að fylla skarð Juanin sem fær ekki nýjan samning hjá félaginu en hann hefur skilað frábæru starfi þar undanfarin ár. Fréttablaðið freistaði þess að fá það staðfest hjá Barcelona að það væri félagið sem landsliðsfyrirliðinn hefði samið við. „Það er stefna félagsins að greina aldrei frá því meðan á tímabili stendur hvaða leikmenn séu að koma og hverjir eru að fara. Það gerum við af virðingu við leikmennina og félögin sem við erum að semja við. Það fæst því ekkert staðfest hjá okkur fyrr en í lok tímabilsins,“ sagði Gustau Galvache, fjölmiðlafulltrúi Barcelona, í samtali við Fréttablaðið.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira