Seldi frisbídiska úr skottinu á bílnum Baldvin Þormóðsson skrifar 17. júní 2014 00:01 Haukur Árnason hefur komið að Íslandsmótinu í frisbígolfi síðustu tíu ár. „
Ég var búinn að vera að selja frisbídiska úr skottinu í tíu ár en síðan var skottið ekki nógu stórt lengur,“ segir frisbígolfáhugamaðurinn Haukur Árnason. Hann ákvað að leggja allt undir og opna frisbígolfbúð í Hafnarfirði í apríl og segir hana tvímælalaust vera skemmtilegustu búð landsins. „Við ákváðum að opna svona rétt fyrir vorið og það hefur verið mjög líflegt, enda mikil gróska í íþróttinni,“ segir Haukur. ,,Það hefur verið mjög jöfn og þétt aukning í sportinu síðan Klambratúnsvöllurinn kom, hann var eiginlega þrepið sem hleypti öllu af stað.“ Frisbígolfvöllurinn á Klambratúni er nú að hefja sitt fjórða starfssumar og frá stofnun fullyrðir Haukur að leikmenn hafi farið úr því að vera í kringum þrjátíu og vel yfir þúsund manns. „Það er vel ásættanlegt á fjórum árum.“ Haukur Árnason FrisbíGolf búðinHaukur hefur haldið Íslandsmót síðastliðin tíu ár ásamt fleiri áhugamönnum en síðast tóku um fimmtíu manns þátt í mótinu. „Við vorum síðan sjö sem fórum saman á breska meistaramótið í maí,“ segir Haukur og bætir því við að þeir yngri hafi verið að sækja í sig verðrið. „Ég er náttúrulega bara orðinn gamall og þreyttur,“ segir Haukur og hlær. „Þessir ungu eru að koma hratt upp.“ Haukur segir að það séu ekki bara einstaklingar sem koma til hans að stíga sín fyrstu skref í frisbígolfi heldur vilja mörg fyrirtæki gera íþróttina að fyrirtækjasportinu. „Það kom fyrirtæki um daginn og keypti sex byrjendasett til að eiga á skrifstofunni sem er nálægt Klambratúni svo starfsfólkið geti skotist út í hádeginu,“ segir Haukur og bætir því við að honum þyki þetta sniðugt framtak hjá fyrirtækjum. Frisbígolfbúðina er að finna í Hafnarfirði á Reykjavíkurvegi 60 og kostar diskurinn á bilinu tvö til fjögur þúsund krónur.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira