Kortleggja Reykjanesið með 84 jarðskjálftamælum Svavar Hávarðsson skrifar 25. október 2014 07:00 Mælarnir eru dýr og sérhæfð tæki, fengin frá þýskum tækjabanka. Stykkið kostar 10 til 12 milljónir króna. Mynd/Philippe Jousset „
Reyndar rak einn mælinn upp í fjöru á Mýrunum, og tveir hafa komið upp í veiðarfærum sjómanna. Aðrar truflanir hafa ekki orðið,“ segir Ögmundur Erlendsson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR), um framgang fjölþjóðlegs rannsóknarverkefnis við kortlagningu jarðhitakerfisins við Reykjanes. Tilgangurinn er að þróa nýjar aðferðir til að rannsaka jarðhitakerfi. Vonir standa til að því loknu að fá sem besta mynd af svæðinu og fá upplýsingar úr dýpri jarðlögum en nú eru fyrir hendi. Þetta gætti leitt til þess að staðsetning borhola verði markvissari og árangursríkari. Í sumarlok kom hópur jarðvísindamanna frá ÍSOR og jarðvísindastofnuninni GFZ (GeoForschungZentrum) í Þýskalandi fyrir 24 jarðskjálftamælum á hafsbotni allt í kringum Reykjanes. Verkið var unnið í samstarfi við HS Orku. Auk þeirra var í sumar komið fyrir 30 mælum á landi. Þá hefur ÍSOR undanfarin tvö ár komið fyrir níu jarðskjálftamælum á vinnslusvæði HS Orku. Veðurstofa Íslands rekur sjö mæla og tékkneskir sérfræðingar hafa að auki sett niður 14 mæla. Allt í allt eru það því 84 mælar sem munu gefa upplýsingar sem nýttar verða í verkefninu. „Þetta er gríðarstórt og metnaðarfullt verkefni sem nýtist öllum jarðfræðiheiminum. Þær þjóðir sem eru með okkur hafa ekki þessar náttúrulegu aðstæður sem hér eru. Svo á móti kemur að við höfum ekki tólin og tækin sem þeir hafa, svo þetta tvinnast vel saman,“ segir Ögmundur. Mælarnir sem fara í sjó eru dýr og sérhæfð tæki; hver þeirra vegur um 500 kíló og kostar á bilinu tíu til tólf milljónir króna. Verkefnið er styrkt af 7. rammaáætlun ESB og er heildarstyrkurinn rúmir 1,5 milljarðar króna. Þar af er styrkupphæð til Íslands um 250 milljónir. Alls eru 19 þátttakendur í verkefninu, þar af þrír frá Íslandi; ÍSOR, HS Orka og Landsvirkjun. Reykjanesið, Krafla og Geitafell við Hornafjörð verða athugunarsvæðin hér á landi og hliðstæð svæði erlendis eru ítölsku jarðhitasvæðin Larderello og eyjan Elba og Tenerife á Kanaríeyjum. Að sögn Ögmundar er stefnt að því að mælarnir liggi í sjó í eitt ár, en verkefnið mun standa lengur, eða í allt að því þrjú ár.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrlan enn ekki fundin og leit úr lofti stöðvuð Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Sjá meira