Keypti þriðjungshlut í Kosmos og Kaos Haraldur Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2014 08:00 Kristján Gunnarsson og Gunnar Leó Gunnarsson skrifuðu undir kaupsamninginn ásamt Guðmundi Bjarna, meðstofnanda fyrirtækisins.
Bandaríska fyrirtækið UENO LLC, sem kemur að hönnun vefsíðna á borð við Google og Youtube, hefur keypt þriðjungshlut í íslenska vefhönnunarfyrirtækinu Kosmos & Kaos. Fyrirtækið var stofnað fyrir fjórum árum af þeim Guðmundi Bjarna Sigurðssyni og Kristjáni Gunnarssyni. Í fréttatilkynningu þeirra um söluna segir að UENO LLC, sem er með höfuðstöðvar í San Francisco, sé eitt það eftirsóttasta á sviði vefhönnunar í heiminum. „Fjárfestingin mun gera okkur kleift að stækka Kosmos & Kaos og fjölga bæði starfsfólki og viðskiptavinum,“ segir Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Tólf starfsmenn eru á skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík og Reykjanesbæ. Í tilkynningunni segir einnig að hlutur UENO LLC geti farið upp í 50 prósent samkvæmt ákvæðum kaupsamningsins. Gunnar Leó Gunnarsson, forsvarsmaður bandaríska fyrirtækisins hér á landi, verður stjórnarformaður Kosmos & Kaos. „Við skoðuðum nokkur íslensk fyrirtæki sem komu til greina sem fjárfestingarkostir fyrir UENO en ákváðum á endanum að kaupa í Kosmos & Kaos. Bæði leist okkur vel á þeirra listrænu nálgun og hæfni starfsfólksins og svo höfum við mjög svipaða sýn á hvernig við viljum byggja fyrirtækin okkar upp,“ segir Gunnar í tilkynningunni.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira