Hlegið að mér er ég reyni að tala frönsku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2014 06:00 20 mörk. Karen var atkvæðamikil í leikjunum tveimur gegn Ítalíu og skoraði alls 20 mörk. Ísland mætir Makedóníu í Laugardalshöllinni annað kvöld. fréttablaðið/ernir
Karen Knútsdóttir fer fyrir íslenska landsliðinu í handbolta sem stendur í ströngu þessa dagana. Liðið keppir um að komast upp úr forkeppni HM 2015 og í umspilsleikina sem fara fram í vor. Stelpurnar unnu tvo sigra á Ítalíu í síðustu viku og þurfa eitt stig í tveimur leikjum gegn Makedóníu sem fara fram á næstunni, sá fyrri í Laugardalshöllinni annað kvöld. Staða Íslands í riðlinum er góð. Liðið er á toppnum með fjögur stig, rétt eins og Ítalía sem fékk stigin sín fyrir að leggja Makedóníu tvívegis að velli í október. Einfaldur útreikningur gefur í skyn að Ísland ætti að eiga góðan möguleika á landa stiginu annað kvöld – miðað við pappírinn góða. „Ég held að þú getir tekið þennan pappír og hent honum í ruslið,“ sagði hún og hló. „Það kom mér mjög á óvart að Ítalía hafi unnið Makedóníu, sem er mikil handbolta þjóð og á leikmenn í stórum liðum í Evrópu. Okkur skilst að gamli þjálfarinn sé aftur tekinn við liðinu og að hann hafi fengið nokkrar stjörnur til að koma aftur í landsliðið. Þetta verður því allt annað lið en mætti Ítalíu og ég á von á mun erfiðara verkefni en við fengum í síðustu leikjum.“Frábær vörn og markvarsla Karen hrósaði sérstaklega varnarleik íslenska liðsins í sigrunum tveimur gegn Ítalíu og ekki síst frammistöðu markvarðarins Florentinu Stanciu. „Flora er frábær markvörður en hún fékk mikla hjálp frá vörninni. Í gegnum tíðina hefur oft vantað stöðugleika í varnarleikinn okkar en nú hefur hann staðið mjög þéttur í 120 mínútur,“ segir Karen sem er ánægð með stöðu liðsins nú eftir erfitt ár. „Við misstum marga leikmenn vegna meiðsla og nokkrir hafa hætt. Einhverjar hafa komið til baka og þá er enn óvissa um sumar,“ segir Karen en ein þeirra sem hefur verið lengi frá er Stella Sigurðardóttir, skyttan öfluga sem er öllu jöfnu fyrirliði landsliðsins. „Hún kemur vonandi til baka sem fyrst en ég tek hennar vakt á meðan og þá ábyrgð sem fyrirliðastöðunni fylgir.“vísir/pjeturLíður vel á rivíerunni Karen hefur það gott á frönsku rivíerunni þar sem hún býr nú. „Ég get ekki kvartað,“ segir hún í léttum dúr. „Þess fyrir utan líður mér mjög vel hjá félaginu enda allir tekið mér mjög vel,“ segir Karen sem hélt utan í atvinnumsnneku árið 2011 er hún samdi við þýska liðið Blomberg-Lippe. Þar var hún í tvö ár áður en hún hélt til Danmerkur og lék með SönderjyskE í eitt ár. „Ég hef aldrei kynnst jafn mikilli atvinnumennsku og hér,“ segir hún. „Við erum fjórtán leikmenn í 100 prósent atvinnumennsku og ekki að gera neitt annað en að spila handbolta. Umgjörðin er líka mjög fagmannleg og vel hlúð að bæði líkamlega og andlega þáttinum.“ Hún segist hafa verið í takmörkuðu hlutverki inni á vellinum hingað til á meðan hún hefur fengið tækifæri til að aðlagast nýjum aðstæðum, sem og nýrri menningu og tungumáli. „Eftir jól verð ég sett í stærra hlutverk en helsta vandamálið hefur verið tungumálið þar sem ég er eini leikmaður liðsins sem ekki talar frönsku. Það tala þó allir ensku og því margir sem geta hjálpað mér,“ segir Karen sem hefur verið í tungumálakennslu í haust. „Ég skil ýmislegt sem sagt er á æfingum en þær hlæja bara að mér ef ég reyni að tala eitthvað sjálf,“ segir hún og hlær sjálf. „Ég er í fullu fjarnámi frá háskóla í London en ætla að minnka við mig í mars til að geta náð góðum tökum á frönskunni.“Hugurinn gæti leitað annað Karen er 24 ára og á því langan feril fyrir höndum kjósi hún að spila áfram. Hún á þó erfitt með að sjá fyrir sér að handboltinn verði áfram í aðalhlutverki hjá henni næsta áratuginn eða svo. „Ég er ein af þeim sem eru alltaf að gera nýjar áætlanir. Ég er nú með tveggja ára samning við Nice og líður ótrúlega vel. Því vil ég klára þann samning og svo væri jafnvel opin fyrir því að gera annan tveggja ára samning. En að honum loknum verð ég búin með námið og þá gæti ég trúað því að hugurinn muni leita annað,“ segir hún. „Ég á auðveldara að sjá fyrir mér að ég verði í þessu næstu fimm árin en ekki tíu. Það þætti mér of mikið. Mig langar líka að ná langt á öðrum sviðum í lífinu en ég ætla að njóta handboltans á meðan ég get – hitt kemur þegar það kemur,“ segir Karen.
Handbolti Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira