Æsir kynorku upp í Akureyringum Ólöf Skaftadóttir skrifar 25. september 2014 13:00 Snorri Ásmundsson MYND/spessi „
Þetta verður ofursýning. Hún heitir „ok?““ segir gjörningalistamaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Snorri Ásmundsson en hann hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir. Hann opnar sýningu í sal Myndlistarfélagsins á Akureyri í kvöld klukkan átta. „Flest verkin vann ég á Akureyri, mínum heimabæ. Þetta eru bæði teikningar og málverk auk þess sem ég verð að sjálfsögðu með gjörninga til að æsa kynorkuna upp í Akureyringum að gömlum sið,“ heldur Snorri áfram. „Ég er náttúrulega þekktur óþekktarangi á Akureyri og þótt víðar væri leitað,“ en Snorri er vel þekktur fyrir uppátækjasemi sína. Hann hefur meðal annars boðið sig fram til forseta Íslands, auk þess sem hann stofnaði sjálfstætt ríki á Seyðisfirði fyrir nokkrum árum. Snorri er heiðursborgari bæði á Akureyri og Seyðisfirði þótt megi deila um réttmæti þeirra tilnefninga. Snorri dvelur í Davíðshúsi um þessar mundir en næst á dagskrá hjá honum er ferðalag til Los Angeles í vinnustofudvöl í nokkra mánuði þar sem hann kemur til með að leggja drög að næstu verkum sínum. Á meðal annarra verkefna sem Snorri vinnur nú að ásamt Tyrfingi Tyrfingssyni og Marteini Þórssyni er kvikmynd í fullri lengd. „Myndin er á frumstigi, en ég hafði samband við Matta í sumar og sagði honum frá því að mig langaði að gera mynd um raðmorðingja. Ég hef haft mikinn áhuga á raðmorðingjum um langt skeið. Við ákváðum að fá Tyrfing til að skrifa með okkur handrit og eftir að ég hafði samband við hann og sagði honum frá hugmyndinni í stórum dráttum ákvað hann að slá til. Ég held þetta verði mögnuð kvikmynd,“ segir Snorri að lokum.
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein