Partý á toppi Esjunnar Gunnar Leó Pálsson skrifar 25. júlí 2014 13:00 DJ Margeir & Ásdís María troða upp í þessari miklu veislu. Mynd/Hörður Sveinsson „
Nú erum við ekki bara stærsti skemmtistaður í heimi, því við verðum hæsti skemmtistaður í heimi um helgina,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsstjóri Nova en fyrirtækið setur upp stærsta skemmtistað í heimi á toppi Esjunnar á sunnudag. „Það er mikil heilsuvakning í gangi og allir komnir með snjallúr og heilsuöpp í farsímann. Við hvetjum því alla til að græja sig upp með rétta búnaðinum og öppunum og skella sér í heilsugöngu með tónleikum á toppnum sem verðlaun.“ „Við erum með risa hljóðkerfi sem við flytjum upp á Esjuna með þyrlu og svo verður bara veisla frá klukkan ellefu til hálf tvö,“ segir Guðmundur Arnar, en einnig verður rafstöð flutt upp á topp svo hægt sé að nota allar græjurnar því lítið er um raflagnir á þessum slóðum.DJ Margeir & Ásdís María troða upp í þessari miklu veislu. „Þyrluþjónustan Helo mun fljúga með hljóðkerfið, DJ búrið glæsilega og diskókúluna hálfu sem var sérsmíðuð fyrir Margeir,“ bætir Guðmundur Arnar við. Diskóbúrið hefur vakið hefur mikla athygli í sumar, nú síðast á Arena de Ingólfstorg á meðan úrslitakeppni HM stóð yfir. Guðmundur Arnar lofar miklu stuði og segir að það verði ekki kalt á toppnum á sunnudag. „Það er svo fallegt og flott þarna uppi núna og útsýnið verður ekki betra, það verður ekki kalt á toppnum á sunnudag. Við ætlum líka að dæla út Hámark-drykkjum, þannig að fólkið verði einnig fullt af orku þegar það leggur í'ann.“ Herlegheitin hefjast klukkan ellefu á sunnudag.
Mest lesið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Staðfesta sambandsslitin Lífið Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Rósa og Hersir orðin foreldrar Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Fleiri fréttir Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Sjá meira