Tæplega tvö þúsund manns bæst í aðdáendahóp Skálmaldar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 12. ágúst 2014 14:14 Skálmöld á tónleikum með Sinfó á síðasta ári.
Tæplega tvö þúsund manns hafa líkað við Skálmöld á Facebook síðasta sólarhringinn. Í gær sagði Vísir frá því að níutíu manns hefðu hætt að fylgja sveitinni á Facebook, eftir að hún gaf út stuðningsyfirlýsingu við Gay Pride hátíðina. Þegar frétt Vísis fór í loftið í gær fylgdu rúmlega 28 þúsund sveitinni á Facebook. Nú er aðdáendafjöldinn kominn upp í tæplega 30 þúsund. Frétt Vísis vakti mikil viðbrögð í gær og sögðust margir í athugasemdakerfinu hafa byrjað að fylgja sveitinni eftir yfirlýsingar hennar um að taka öllum eins og þeir eru. Facebook-færslur sveitarinnar um málið hafa einnig vakið mikla athygli. Til að mynda hafa um 730 manns smellt á „like-takkann“ við nýjustu færslu sveitarinnar, þar sem tekið er fram hversu margir hafi hætt að fylgja sveitinni. Á föstudaginn birtist merki sveitarinnar í litum Gay Pride hátíðarinnar og líkuðu um 1700 manns við þá færslu. Snæbjörn Ragnarsson, einnig þekktur sem Bibbi og er bassaleikari Skálmaldar, sagði í samtali við Vísi í gær að honum þætti leiðinlegt að einhverjir væru enn á móti samkynhneigðum og sagði viðbrögðin við færslu sveitarinnar sýna að enn væri fullt erindi að halda hátíðir á borð við Gay Pride. „Við sjáum ekki eftir fólkinu sem hætti að fylgja okkur, maður er mest leiður yfir því að það sé staðreynd að sumir hugsa enn svona," sagði hann.
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Fleiri fréttir Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Sjá meira