Sjö ár síðan að Njarðvík vann þrjá í röð í sömu úrslitakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2014 06:00 Logi Gunnarsson. Vísir/Daníel
Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta í fyrrakvöld með þriðja sigrinum í röð á móti Haukum. Þetta var fyrsta serían sem Njarðvíkurliðið vinnur í úrslitakeppni síðan 2010. Það þarf að fara enn lengra aftur til að finna þrjá sigurleiki í röð hjá Njarðvík í einni úrslitakeppni en það gerðist síðast í mars 2007. Njarðvík vann þá 2-0 sigur á Hamar/Selfoss í átta liða úrslitunum og svo fyrsta leikinn á móti Grindavík í undanúrslitunum. Einar Árni Jóhannsson var þjálfari Njarðvíkurliðsins þá alveg eins og nú en liðið fór þá alla leið í lokaúrslitin þar sem liðið tapaði í fjórum leikjum á móti KR. Það er bara einn leikmaður sem hefur tekið þátt í öllum leikjunum þremur í þessum tveimur sigurgöngum og það er Hjörtur Hrafn Einarsson. Egill Jónasson var með í tveimur fyrstu leikjunum á móti Haukum en missti af þriðja leiknum. Njarðvíkingar þurfa að bíða eftir því að fá að vita hvaða lið verður mótherji liðsins í undanúrslitunum en það verður annaðhvort Grindavík eða Þór. Fjórði leikur liðanna verður í Þorlákshöfn á morgun en staðan er 2-1 fyrir Grindavík sem þarf bara einn sigur til viðbótar.Njarðvík og undanfarnar úrslitakeppnir: 2014 - Komið í undanúrslit eftir 3-0 sigur í einvígi við Hauka 2013 - 1-2 tap fyrir Snæfelli í í 8 liða úrslitum 2012 - 0-2 tap fyrir Grindavík í 8 liða úrslitum 2011 - 0-2 tap fyrir KR í 8 liða úrslitum 2010 - 1-3 tap fyrir Keflavík í undanúrslitunum 2009 - 0-2 tap fyrir Keflavík í 8 liða úrslitum 2008 - 0-2 tap fyrir Snæfelli í í 8 liða úrslitum 2007 - 1-3 tap fyrir KR í lokaúrslitum 2006 - Íslandsmeistari
Dominos-deild karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Sjá meira