Gleðja eldri borgara með hljómleikaröð Gunnar Leó Pálsson skrifar 4. júní 2014 09:00 Tónleikaröðin hófst 1. júní og verður tríóið á ferð og flugi við að skemmta öldruðum allan júnímánuð. Vísir/GVA „
Þetta er hugmynd sem strákarnir fengu, sem hefur gerjast í svolítinn tíma. Þetta er svo skemmtilegt og gefandi fyrir svo margar sakir,“ segir tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir en hún, ásamt þeim Tómasi Jónssyni og Jökli Brynjarssyni, stendur fyrir hljómleikaröðinni, Nú verður glaumur og gaman, nú gleðjist hver einasta sál. Um er að ræða hljómleikaröð til heiðurs eldri borgurum Íslands, sem inniheldur 65 tónleika á einungis 30 dögum. „Þetta er þétt dagskrá hjá okkur, við erum með allt upp í fjóra tónleika á einum deginum. Við förum líka um allt land,“ segir Ása Berglind. Þau ætla að heimsækja hvert einasta hjúkrunar- og dvalarheimili landsins en í fyrstu vikunni leika þau á 26 tónleikum. Öll gefa þau vinnuna sína og gera þetta af góðmennskunni einni. „Við erum að gefa vinnuna okkar og bensín, en við vonumst þó til þess að einhverjir sjái hag sinn í að styrkja þetta verkefni. Við höfum talað við fyrirtæki og sjóði en höfum ekki fengið neina styrki nema útilegukortið styrkti okkur með útilegukortum. Argh ehf styrkti okkur líka með gerð auglýsingaplakats,“ útskýrir Ása Berglind.Tónleikarnir á hverjum stað fyrir sig eru 45 mínútna langir. „Það er svo einfalt, að taka sér klukkutíma pásu frá Facebook, skunda á elliheimilið með hljóðfæri og spila og syngja með fólkinu. Það gefur okkur og fólkinu ólýsanlega mikið. Við höfum fengið frábær viðbrögð og nú þegar höfum við lent í alls kyns tilfinningum, fólk ýmist hlær eða grætur.“ Á hljómleikaröðinni ætla þau að leika íslenska dægurlagatónlist sem flestir ættu að þekkja. „Við spilum íslenskar dægurlagaperlur, allt frá lögum eftir Jón Múla Árnason yfir í Hreðavatnsvalsinn,“ bætir Ása Berglind við. Hún segist ekki geta lýst þeirri góðu tilfinningu að skemmta fólki. „Það er dásamlegt þegar líf kemur í döpur augu, sagði einn starfsmaður við mig um daginn. Tónlistin er svo ákaflega öflugt og gott lyf,“ bætir Ása Berglind við. Hægt er að fylgjast með ferðalagi þeirra á fésbókarsíðu þeirra sem er samnefnd tónleikaferðinni.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira