Jón Arnór og félagar úr leik | Klúður á skrifstofunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. febrúar 2014 23:35 Mynd / Daníel
CAI Zaragoza tapaði naumlega fyrir tyrkneska liðinu Besiktas, 79-77, í Evrópubikarnum í kvöld og komst af þeim sökum ekki áfram úr riðlakeppninni. Besiktas tryggði sér sigur með troðslu á lokasekúndum leiksins en Tyrkirnir byrjuðu mun betur í leiknum og náði 21-9 forystu seint í fyrsta leikhluta. Munurinn var þó aðeins fimm stig í hálfleik, 41-36, og skiptust liðin á forystunni í seinni hálfleik. Mikil spenna var á lokamínútum leiksins en Tyrkirnir höfðu að lokum betur.Jón Arnór Stefánsson spilaði í tæpar 20 mínútur í leiknum fyrir Zaragoza og skoraði á þeim tíma sex stig auk þess sem hann gaf þrjár stoðsendingar og tók tvö fráköst. Hann stal boltanum einu sinni en tapaði honum tvívegis. Hann sagði í samtali við vefsíðuna karfan.is eftir leikinn í kvöld að öllu jöfnu hefðu hans menn átt að vinna Besiktas. Leikurinn fór fram á Spáni en ekki á heimavelli liðsins í Zaragoza. Ástæðan er sú að forráðamenn liðsins sendu vitlausar upplýsingar um leiktímann á umsjónarmenn keppninnar og var höllin, þar sem liðið spilar heimaleiki sína, bókuð fyrir tónleikahald í kvöld. Zaragoza þurfti því að spila í klukkutíma fjarlægð frá heimavelli liðsins. „Þetta var þvílíkt klúður hjá þeim og án þess að nota það sem afsökun þá er ég handviss um að við hefðum tekið þá með 20 stigum á okkar parketi,“ sagði Jón Arnór.
Körfubolti Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira