
Þórður G. Ólafsson, yfirlæknir á læknavaktinni og Heilsugæslustöð Efra-Breiðholts, sagði lesendum Vísis að ælupestin sem angrað hefur fjölmarga landsmenn undanfarið væri útbreiddari en alla jafna.
Hann minnti á mikilvægi handþvotts og almenns hreinlætis. Þá mælti hann ekki með því að fólk drykki kóladrykki þegar það er með ælupest.
„Nei, kóladrykkir eru ekki góðir við magapestum. Þeir innihalda mikinn sykur, mikið koffein og svo eru þessir drykkir súrir í raun og veru, þeir eru með lágt PH-gildi. Það er ekki gott að drekka svona drykki þegar maður er með magakveisu.“
Norskur sjónvarpsmaður í nektarjóga
Harald Rønneberg hjá norsku sjónvarpsstöðinni TV2 skellti sér í nektarjóga lesendum Vísis til mikillar skemmtunar. Um var að ræða innslag í þátt hjá honum á sjónvarpsstöðinni.
„Finnst fólki þetta alvöru slakandi?“ spurði hann, furðulostinn.

Einar Árni Jóhannsson, kennari í Njarðvík og körfuboltaþjálfari, og kona hans eignuðust andvana barn á dögunum. Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof eiga þau ekki rétt á fullu fæðingarorlofi. Hefði barnið hins vegar fæðst en látið lífið mínútu síðar væri fullur réttur til orlofs.
Einar segir að móðir sem fæði andvana barn, rétt eins og konan hans, fari í gegnum sama ferli og sú sem fæðir lifandi barn sem láti lífið síðan mínútu eða jafnvel klukkustundum eftir fæðingu.
„Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi að ég er ekki að kalla eftir neinu fyrir mig og mína, en mikið vona ég að menn vakni og leiðrétti þessa vitleysu sem að meira að segja fagaðilarnir í kerfinu furða sig á.“

Ástu Gunnlaugsdóttur var í vikunni gert af Hæstarétti að afhenda börn sín tvö föður þeirra í Bandaríkjum. Sneri Hæstiréttur við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem áður hafði áður úrskurðað að það myndi stefna andlegri heilsu þeirra í hættu að vera tekin úr umsjá móður þeirra. Þarf Ásta að snúa aftur í fyrrverandi heimabæ sinn í Poulsbo, Washington, innan tveggja mánaða.
Eiginmaður Ástu játaði fyrir héraðsdómi í desember 2005 að hafa átt í vörslum sínum 349 barnaklámsmyndir og 17 hreyfimyndir af börnum sem var verið að misnota. Myndirnar fundust í tölvu hans þegar hann fór með hana í viðgerð hjá Tölvulistanum. Hlaut hann þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir brot sín.
Á bráðamóttöku með astmaveikt barn og sagt í tvígang að hringja í 112
„Í guðsbænum ekki fara uppá bráðamóttöku nema þú sért hreinlega í andarslitrunum og ekki gleyma að hringja í 112 úr eigin síma fyrst.“ Svona lýsir fertug móðir reynslu sinni af því að sækja heim bráðamóttökuna í sveitarfélagi sínu á þriðjudaginn.
Konan fór með barn sitt, sem er astmaveikt og var með brjóstverki, á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Úr urðu kostuleg samskipti við afgreiðsludömuna.

Hildur Friðriksdóttir, meistaranemi í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, segir nauðrakstur á skapahárum orðið hið hefðbundna viðmið þegar komi að skapahárasnyrtingu ungra kvenna. Hildur hefur rannsakað málið í námi sínu.
„Það var mjög augljóst hjá yngri hópnum að þetta er í raun orðið normið og ákveðinn hluti af því að verða fullorðinn. Hluti af því að verða kynþroska að taka af sér öll hárin. Þær sögðu þetta gefa meiri nánd í kynlífi en aðspurðar hvort þær hefðu einhvern samanburð svöruðu þær allar neitandi,“ segir Hildur í samtali við Vísi.