Gætu fengið lífstíðardóm fyrir samkynhneigð Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. maí 2014 16:46 Mennirnir tveir í réttarsalnum. vísir/afp
Tveir karlmenn í Úganda, Kim Mukisa og Jackson Mukasa, eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi fyrir að stunda kynlíf og mættu þeir í réttarsal í gær í von um að verða látnir lausir gegn tryggingu. Reiknað er með að þeir lýsi báðir yfir sakleysi sínu. Mennirnir eru fyrstu samkynhneigðu einstaklingarnir sem réttað verður yfir eftir að ný lög tóku gildi í febrúar sem hertu viðurlög við samkynhneigð til muna. Voru þeir ákærðir fyrir hátterni sem stjórnvöld í Úganda telja ónáttúruleg en þeir voru handteknir í janúar eftir að þeir flúðu frá æstum múg. Samkvæmt nýju lögunum geta einstaklingar sem ítrekað stunda kynlíf með öðrum af sama kyni átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Þá hefur verið sett bann við „samkynhneigðum áróðri“ og ber almenningi skylda til þess að tilkynna samkynhneigða til yfirvalda. Mennirnir tveir voru þó handteknir á grundvelli gömlu laganna og telja lögmenn þeirra að þeir verði látnir lausir gegn tryggingu og réttað verði yfir þeim síðar. Yoweri Museveni, forseti Úganda, hefur verið gagnrýndur fyrir að undirrita nýju lögin og er hann sakaður um að hafa með því reynt að afla sér fylgis í fyrirhuguðum forsetakosningum sem fara fram árið 2016.
Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fleiri fréttir „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Sjá meira