Háttvirti þingmaður, elskarðu mig í alvörunni? Helga Birgisdóttir skrifar 18. nóvember 2014 10:31 Ég meina auðvitað ekki hvort þú elskir mig á ástríðufullan hátt eins og ástmey eða eins innilega og börnin þín. Ég bara spyr af því mér finnst það liggja í hjartans eðli að þú elskir mig . . . hreinlega af því að þér virðist svo umhugað um mig – þú hefur lofað að sjá um mig og láta líf mitt verða betra í dag en í gær. Ég hef svo oft heyrt þig segja þetta - að þú ætlir að bæta líf mitt og annarra í þjóðfélaginu. Það virkar kannski dálítið vemmilegt að segja elska – það hljómar eitthvað svo stórt og mikið – eitthvað svo amerískt. En er ekki sagt; elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig? Mér finnst svo fallegt að þú skulir elska mig án þess að þekkja mig persónulega. Ég næ að slaka á. Þar sem þú hefur ákveðið vald í þjóðfélaginu þá gefur þetta mér vellíðan og öryggistilfinningu. Ég get treyst því að grunnþarfir mínar verði í hávegum hafðar. Ég fæ pottþétt alltaf nóg að borða. Ég fæ öruggt húsaskjól, ég fæ umhyggju og aðstoð þegar ég er veik og þarf á að halda. Ég get haldið reisn minni og upplifað að ég skipti máli. Ég þarf ekki að kvíða neinu. Ég bið þig samt endilega um eitt; Hættu að hræða mig . . . af gömlum vana þínum. Ég veit þú meinar vel en það er slæmt fyrir andlega og líkamlega heilsu mína að vera mötuð á ótta – að allt fari fjandans til ef ég haga mér ekki á þann hátt sem þú vilt. Ég verð bara taugaveikluð af öllum þessum áróðri. Þú minnir á foreldra sem stöðugt segja börnum sínum að passa sig á hinu og þessu. Þau mega ekki prófa neitt spennandi sem gæti þó þroskað þau og styrkt, eins og það að klifra í trjám - þau gætu dottið. Öruggast finnst þér að endurtaka sama leikinn, sem ÞÚ velur, AFTUR og AFTUR og sleppa því að prófa nýjar leiðir sem gætu þó gert lífið skemmtilegra. Ný leið væri t.d. að forgangsraða gildum okkar á annan hátt. Kærleikur, samkennd og sköpunargleði þættu merkilegri en allt annað – jafnvel merkilegri en hagvöxtur. Veit þú vilt vel en ef þú elskar mig í alvörunni þá viltu væntanlega kenna mér (með fordæmi) að rækta þessa eiginleika af því að þeir koma sér vel. Margir munu elska mig og vera sannir vinir ef ég hef þessa kosti. Ég sé líka að þegar þú sjálfur felur þessa eiginleika þá elska þig fáir . . . fólk baktalar þig og ætlar þér allt hið versta . . . þó þú viljir hið besta. Ég starfa núna sem hjúkka á bráðageðdeild og sé hvernig kvíði og áhyggjur geta farið með heilsu fólks . Veit þú trúir því kannski ekki en mörgum líður hreint hryllilega – sjá allt svart. Það er súrrealískt hve mörgum langar að deyja og flýja þannig hlutskipti sitt og yfir fjörutíu einstaklingum tekst það á hverju ári hér á Íslandinu góða. Þarna getur þú komið sterkur inn og breytt mörgu . . . sem betur fer . Ég reyni líka mitt besta og sinni djobbi mínu ágætlega, þ.e. bjarga mannslífum af og til, enda með 30 ára starfsreynslu og 380.000 kr. í laun á mánuði (þ.e. ef ég væri í fullu starfi sem er erfitt í álagsmikilli vaktavinnu). Ég lofa þó að leggja mig alla fram ef þú leggst einhvern tímann í deildina mína - gætir nú samt óvart orðið útundan því ég er oft eina hjúkkan á vakt með 19 skjólstæðinga. Talandi um ástina þá er stóra meinið skortur á sjálfsást – og vonleysi um að upplifa hana. Einmanaleiki grípur hugann sem verður veikur og kann ekki leið út. Þess vegna er lífsnauðsynlegt að kenna börnum kærleika, samkennd og aðrar góðar tilfinningar. Lífið virkar eins og búmmerang - þú færð til baka það sem þú sendir frá þér - á endanum. Þetta sannast skemmtilega með brosinu, þegar þú brosir færðu bros til baka - og veistu hvað, BROSIÐ ÞITT HEILAR mörg mein og þannig getur þú sparað heilbrigðiskerfinu góða summu. Ég er þakklát fyrir þig elsku þingmaður því þú kennir mér mikið; með kostum þínum . . . hvernig ég vil vera, og brestum . . . hvernig ég vil ekki vera. Þú eins og við hin erum alltaf fyrirmyndir hvort sem við viljum eða ekki. Ég sendi þér bros og blessun . . . svo þjóðinni líði vel. ÞVÍ ÖLL ERUM VIÐ JÚ EITT! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun