Fallið Lýðveldi Ólafur Sigurðsson skrifar 1. apríl 2014 12:55 Sitjandi ríkisstjórn var kosin útá loforð, kosningaloforð sem hafa verið svikin, toguð og teygð. Þó var það efnt sem ekki var lofað, því það fyrsta sem ríkisstjórnin gerði var að fella niður auðlindagjöld á sjávarútveginn, reyna að afnema náttúruverndarlög, koma í veg fyrir nýja Stjórnarskrá og veita ættingjum og flokkshollum vinum stöður og embætti í stjórnkerfinu. Með því að færa hagsmunaaðilum hagnaðinn af auðlindunum sem átti að brauðfæða þjóðina, voru búnir til mjög öflugir einstaklingar og fjölskyldur sem ráða hverju því sem hagsmunir þeirra krefjast hverju sinni. Sé til dæmis farið fram á gengisfellingu, getum við reiknað með því að aðilar í stjórnkerfinu muni reyna að koma því til leiðar, þó það þurfi að skipta um seðlabankastjóra, svona öflugt og einfalt er þetta kerfi. Þetta var það sem hrunið afhjúpaði; vanhæfni, valdfíkn og virðingarleysi, sjálfsblekkingu, spillingu og klíkuvæðingu sem hafði ráðið ríkjum í íslensku samfélagi alltof, alltof lengi. Þetta gerist á okkar kostnað og sífellt hækkar prísinn. Ekki er hægt að byggja upp heilbrigðiskerfið, menntakerfið, ferðamannaiðnað eða eitt né neitt. Það er enginn peningur til að hækka launin, til að minnka biðlistana á BUGL, í fleiri hjartþræðingar eða til öryrkja. Fólk deyr á biðlistum, fjölskyldur eru tættar vegna vistunarvanda ungmenna og aldraðra og margir eiga ekki fyrir lyfjum eða mat. Þetta er ekki það Íslands sem við viljum búa í. Þetta er nýtt og ógeðfellt samfélag. Það eru einstaklingar og fjölskyldur í gegnum fyrirtækin sín sem sitja einir að jötunni með aðstoð stjórnmálamanna og fjármálastofnana. Þetta virkaði fyrir hrun og virkar enn - því engum reglum var breytt, það var markvisst komið í veg fyrir slíkt. Tillaga stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá eru nýju reglurnar sem áttu m.a. að koma í veg fyrir að spilling gæti þrifist svo auðveldlega að hægt væri að ræna þjóðina öllu. Hún var samþykkt í kosningum á vegum Alþingis af yfirgnæfandi meirihluta. Samt fáum við hana ekki. Og nú er verið að afhenda Íslenska náttúru erlendri stóriðju sem stelur undan hagnaðinum og borgr smánarskatta og gjöld vegna hagræðingar í bókhaldinu, að ekki sé minnst á raforkuverðin sem er leyndarmál. Það var meginverkefni Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að koma í veg fyrir nýja stjórnarskrá og lítið bara á hver er með hana núna! Það er ekki hægt að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi meðan spillingin er með þessum hætti. Hún tekur og allan tíma stjórnsýslunnar. Það er enginn tími lengur til að stjórna landinu. Það voru ekki bara bankar og stjórnmál sem hrundu 2008. Það var Ísland sem hrundi undan þunga eigin spillingar. Lýðveldið er í raun fallið. Stjórnin er svikastjórn sem komst að með lygum og rekur sín helstu mál í beinni andstöðu við yfirlýstan vilja meirihluta almennings sem í þjóðaratkvæðagreiðslu og skoðanakönnunum og með undirskriftum hefur farið fram á nýja stjórnarskrá, auðlindir í þjóðareigu, jafnt vægi atkvæða og kosningar um áframhaldandi viðræður við ESB. Það eru fleiri dæmi. Það er sagt að ekkert sé hægt að gera fyrr en í næstu kosningum. En þetta er ekki lýðræði, það er ekki lýðræði fyrir þjóðina að spilltir stjórnmálamenn geti komist í stjórn með loforðum sem er svikin strax eftir kosningar og hagnaðurinn af auðlindum eins ríkasta lands í heimi sé færður frá nauðstöddu fólki til spilltra auðmanna sem líkjast meir og meir stjórnmálamönnum og öfugt. Það er ofbeit á jötunni, við getum ekki borið þessa spillingu lengur og það er enginn annar en við sjálf sem verðum að stoppa þetta. Virkjum trúnaðarmannakerfið – Nýjar kosningar eða allsherjarverkfall Það er þó eitt sem við getum gert, hvert og eitt á okkar vinnustað. Við getum ákveðið að hætta að hætta bara að tala um þetta og reynt að gera eitthvað - því við eigum rétt í þessu samfélagi, við eigum rétt sem okkur ber skylda til að nýta. Við höfum trúnaðarmannakerfið. Á hverjum einasta vinnustað getum við valið okkur gott fólk sem við treystum og kosið sem trúnaðarmann. Farið svo fram á fund í stéttarfélaginu sem við tilheyrum og krefjast atkvæðagreiðslu um samstöðuverkfall, allsherjarverkfall til að krefjast nýrra kosninga vegna svika! Við yrðum að gera þetta mörg saman – því annað hvort nýtum við samstöðumáttinn eða fyrirgerum þessu veiklaða lýðræði sem er úthlutað í smáskömmtum á fjögurra ára fresti. Það mun verða reynt að koma í veg fyrir þetta, það verður sagt að þetta sé ólöglegt, uppreisn, barnaskapur og svo framvegis – þá þurfa trúnaðarmennirnir okkar hvatningu og stuðning. Við höfum áður sýnt samstöðu sem virkaði, því 2009 felldum við gerspillta og vanhæfa ríkisstjórn á Austurvelli. Þetta er hægt, þetta hefur verið gert og allur heimurinn tók eftir og dáðist af hugrekkinu. Það getur ekki verið rétt að lýðræðið virki aðeins fyrir spillta stjórnmálamenn en ekki okkur. Við eigum það lýðræði sem felst í þeim rétti að geta varið okkur og lífskjör okkar, til þess einfaldlega að geta búið hér og lifað af landinu okkar. Við getum ekki og við megum ekki láta ræna öllu frá okkur, heimilinu, sparifénu, lífeyrissjóðnum, auðlindunum og nú lýðræðinu! Því þá er lýðveldið okkar Ísland fallið í hendur þeirra sem skirrast ekki við að taka til sín sem þeir girnast, alla auðlegð Íslensku þjóðarinnar.Lesendur Vísis geta sent inn greinar á greinar@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun