Lampard stöðvaði Chelsea | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. september 2014 14:15
Frank Lampard var hetja Manchester City er hann tryggði sínu liði 1-1 jafntefli gegn sínu gamla félagi, Chelsea, í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea hafði ekki tapað stigi á tímabilinu til þessa og komst yfir með marki varamannsins Andre Schürrle á 71. mínútu. Aðeins fáeinum mínútum áður hafði Pablo Zabalata fengið að líta sitt annað gula spjald í leiknum eftir að hafa tekist á við Diego Costa, sóknarmann Chelsea. City færði sér liðsmuninn í nyt með því að komast yfir en Eden Hazard lagði boltann fyrir Schürrle sem skoraði af stuttu færi. Lampard var aðeins búinn að vera inn á vellinum í örfáar mínútur þegar hann skoraði jöfnunarmarkið. James Milner kom boltanum inn í teig fyrir fætur Lampard sem var hárrétt staðsettur og afgreiddi boltann í netið. Hann fagnaði þó ekki markinu gegn hans gamla félagi. Lampard komst svo nálægt því að skora sigurmarkið í leiknum en skot hans fór í varnarmann. Niðurstaðan var því 1-1 jafntefli en Chelsea er sem fyrr á toppnum, nú með 13 stig. City er í sjötta sæti með átta stig. Frank Lampard lék með Chelsea frá 2001 til 2014, alls 429 leiki, en í sumar gekk hann til liðs við New York City í Bandaríkjunum. Hann var lánaður til Manchester City á meðan bandaríska deildin er í fríi.
Enski boltinn Mest lesið Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Golf Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Sport Líkir Mbappé við Ninja-skjaldböku Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Lallana snýr aftur til Southampton Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Tilkynntu framlengingu Kerr með dramatísku myndbandi Myndi vilja tala við Rashford og Greenwood en selja Maguire Einn af styrktaraðilum Newcastle sagður misþyrma starfsfólki Ten Hag heldur starfi sínu hjá Manchester United Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“ United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Sjá meira