Formúla 1

Framvængur Red Bull ólöglega sveigjanlegur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Var vængur Red Bull ólöglegur?
Var vængur Red Bull ólöglegur? Vísir/Getty
Red Bull bílarnir munu líklega hefja keppni frá þjónustusvæðinu á morgun. Þeir fá að vera með en ætli þeir að vera með þá verða þeir að ræsa aftast.

Niðurstaða:

Vængirnir ólöglegir. Bílarnir mega ræsa aftast. Hins vegar þykir líklegt að Red Bull velji að breyta fleiru en framvængnum. Þá þurfa þeir að ræsa frá þjónustusvæðinu

Jo Bauer, tæknisérfræðingur FIA, alþjóða akstursíþróttasambandsins hefur vísað málinu til dómara keppninnar í Abú Dabí. Bauer hefur rannsakað framvæng liðsins og komist að því að tveir hlutar hans teygjast út fyrir leyfileg mörk þegar bíllinn er á ferð.

„Þegar framvængir bíla númer 1 (Vettel) og 3 (Ricciardo) voru skoðaðir kom í ljós að hlutar framvængsins voru hannaðir til að teygjst til við átak,“ segi í yfirlýsingu frá Bauer.

„Að mínu mati er það brot á grein 3.15 í tæknireglum Formúlu 1. Þar af leiðandi hef ég vakið athygli dómaranna á þessu, þeir munu svo úrskurða um það,“ segir enn frekar í yfirlýsingunni.

Af þessu leiðir að forsvarsmenn Red Bull þurfa að mæta á fund dómara. Ef dómararnir ákveða að taka athugun Bauer til greina neyðist Red Bull til að skipta um vængi og hefja keppni frá öftustu ráslínu eða keppa eins og ekkert hafi í skorist og áfrýja. Það kæmi þá í ljós seinna hvort einhver Red Bull er í rétti.


Tengdar fréttir

Rosberg á ráspól í Abú Dabí

Nico Rosberg náði ráspól liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Þessi úrslit auka á spennuna í keppninni á morgun.

Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur allra á báðum æfingum dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var þó ekki langt á eftir.

Allar brellur notaðar fyrir lokaátökin í Abú Dabí

Mercedes-ökuþórarnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í Abú Dabí á sunnudaginn. Enginn annar en þeir getur unnið. Sálfræðistríðið í fullum gangi hjá "vinunum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×