Listir eru hreyfiafl Tinna Guðmundsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 09:55 Á Degi myndlistar opnaði í Skaftfelli samsýningin Soð þar sem ellefu lokaársnemar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands sýna ný forvitnileg verk unnin alfarið á Seyðisfirði. Þetta mun vera fimmtándi hópurinn sem ferðast Austur til að taka þátt í námskeiðinu Vinnustofan Seyðisfjörður undir stjórn Björns Roth og Kristjáns Steingríms. Sýningin er lokastigið í námskeiðinu og er iðulega ein best sótta sýning ársins í Skaftfelli enda einstætt tækifæri fyrir Austfirðinga til að koma saman og sjá hverju listamenn framtíðarinnar eru að vinna að. Fyrir þátttakendur er námskeiðið ógleymanleg lífreynsla og upplifun. Fyrir Skaftfell er námskeiðið mjög mikilvæg tenging við grasrótina í íslensku listalífi. Ég var svo lánsöm að taka þátt í þessu námskeiði árið 2002 og fá að kynnast Seyðisfirði og Skaftfelli. Sú reynsla hafði afgerandi áhrif á mig og mitt líf. Nú 12 árum seinna þegar ég vinn með þessum nemendum að undirbúningi sýningarinnar kemst ég ekki hjá því að velta fyrir mér hverjir halda áfram að stunda listsköpun, hverjir fara í framhaldsnám og hverjir feta annan veg. Á sínum tíma tók ég þá ákvörðun að fara skynsömu leiðina, til að eiga í soðið, og mennta mig í einhverju hagnýttu sem tengist minni ástríðu, myndlist. Starfsumhverfi þessa nema er gjörólíkt því sem ég kynntist við mína útskrift og að mestu leyti í jákvæðum skilningi. Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið mjög gott starf við úttekt og umbætur á stjórnsýslu umgjörðinni. Nýlega var unnin rannsóknarvinna þar sem tekin voru saman hagræn áhrif skapandi greina og niðurstaðan var athyglisverð. Í ljós kom að virðisaukaskattskyld velta þessa afkima var 189 milljarðar árið 2009 og ársverk um 9.400 talsins. Í kjölfarið var settur saman starfshópur sem vann að stöðuúttekt og setti fram tillögur um bætt starfsumhverfi sem eru löngu tímabærar. Auk þess lögðu íslensk stjórnvöld fram menningarstefnu, ný safnalög komu fram og það sem mestu máli skiptir í mínu fagi, ný myndlistarlög voru sett árið 2012 og til varð myndlistarsjóður. Ísland er þar með komið með ágætis stuðningsnet fyrir listir, myndlist þar með talið, sem er hliðstætt kollegum okkar á Norðurlöndunum. Tilurð myndlistarsjóðs er alger umbylting fyrir þá sem starfa í myndlistargeiranum og fjölbreyttan hóp þeirra sem njóta myndlistar. Í fyrsta sinn er komin sjóður sem leggur áherslu á framleiðslu verkefna eingöngu tengd myndlist, en ekki líknar- og menningarmál í sama flokki eins og fyrirkomulagið er hjá mörgum samfélagssjóðum. Í fyrsta sinn er mögulegt að þróa verkefni út frá listrænu gildi þess og tryggt að verkefnið verði metið á þeim forsendum, en ekki til hvaða markhóps kynningarefnið nær. Í fyrsta sinn er hægt að gera raunhæfa kostnaðaráætlun og fá úthlutað þeirri fjárhæð sem sótt er um, en ekki tilfallandi upphæð sem er í engu samhengi við framsett gögn. Nú loksins er hægt að leita í ákveðinn farveg með innihaldsrík verkefni með listamönnum og fagaðilum úr geiranum. Myndlistarsjóður er hvatning til þess að bretta upp ermarnar og framleiða verkefni sem stuðla að frumsköpun og framþróun í íslenskri myndlist. Með þessa uppbyggingarstarfsemi síðustu ára að leiðarljósi er komin grundvöllur fyrir því að fara að fordæmi Evrópusambandsins og auka stuðning og fjárframlög til lista. Höfum trú á þessum úttektum og tölfræðinni, höfum trú á listamönnum og fagmönnum, höfum trú á listum sem hreyfiafli. Höldum áfram að byggja upp stuðningskerfi fyrir listir á Íslandi og þar með stöðugt starfsumhverfi fyrir þá sem hafa atvinnu af listum. Greinin er birt í tilefni Dags Myndlistar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Myndlist og hugsun Hvaða áhrif hefur listin á það hvernig við tökum ákvarðanir í okkar daglega lífi? 30. október 2014 10:06 Fréttir af akri allsnægtanna Hugrekki og gagnrýnin, skapandi hugsun eru undirstaðan í starfi myndlistarmannsins. 31. október 2014 09:18 Skál fyrir myndlistinni Í kaffi, bjór, djús eða kampavíni, eða bara Egils Kristal ef maður vill vera betri en hinir. Já, bræður og systur, í dag er dagur myndlistar. Dagur listformsins sem mótar sjónrænan veruleika okkar niður í minnstu smáatriði. 1. nóvember 2014 07:00 Að staldra við Við Sæbrautina er hægt að sjá nokkuð einstakt listaverk eftir Sigurð Guðmundsson sem nefnist Fjöruverk. 29. október 2014 09:02 Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Sjá meira
Á Degi myndlistar opnaði í Skaftfelli samsýningin Soð þar sem ellefu lokaársnemar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands sýna ný forvitnileg verk unnin alfarið á Seyðisfirði. Þetta mun vera fimmtándi hópurinn sem ferðast Austur til að taka þátt í námskeiðinu Vinnustofan Seyðisfjörður undir stjórn Björns Roth og Kristjáns Steingríms. Sýningin er lokastigið í námskeiðinu og er iðulega ein best sótta sýning ársins í Skaftfelli enda einstætt tækifæri fyrir Austfirðinga til að koma saman og sjá hverju listamenn framtíðarinnar eru að vinna að. Fyrir þátttakendur er námskeiðið ógleymanleg lífreynsla og upplifun. Fyrir Skaftfell er námskeiðið mjög mikilvæg tenging við grasrótina í íslensku listalífi. Ég var svo lánsöm að taka þátt í þessu námskeiði árið 2002 og fá að kynnast Seyðisfirði og Skaftfelli. Sú reynsla hafði afgerandi áhrif á mig og mitt líf. Nú 12 árum seinna þegar ég vinn með þessum nemendum að undirbúningi sýningarinnar kemst ég ekki hjá því að velta fyrir mér hverjir halda áfram að stunda listsköpun, hverjir fara í framhaldsnám og hverjir feta annan veg. Á sínum tíma tók ég þá ákvörðun að fara skynsömu leiðina, til að eiga í soðið, og mennta mig í einhverju hagnýttu sem tengist minni ástríðu, myndlist. Starfsumhverfi þessa nema er gjörólíkt því sem ég kynntist við mína útskrift og að mestu leyti í jákvæðum skilningi. Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið mjög gott starf við úttekt og umbætur á stjórnsýslu umgjörðinni. Nýlega var unnin rannsóknarvinna þar sem tekin voru saman hagræn áhrif skapandi greina og niðurstaðan var athyglisverð. Í ljós kom að virðisaukaskattskyld velta þessa afkima var 189 milljarðar árið 2009 og ársverk um 9.400 talsins. Í kjölfarið var settur saman starfshópur sem vann að stöðuúttekt og setti fram tillögur um bætt starfsumhverfi sem eru löngu tímabærar. Auk þess lögðu íslensk stjórnvöld fram menningarstefnu, ný safnalög komu fram og það sem mestu máli skiptir í mínu fagi, ný myndlistarlög voru sett árið 2012 og til varð myndlistarsjóður. Ísland er þar með komið með ágætis stuðningsnet fyrir listir, myndlist þar með talið, sem er hliðstætt kollegum okkar á Norðurlöndunum. Tilurð myndlistarsjóðs er alger umbylting fyrir þá sem starfa í myndlistargeiranum og fjölbreyttan hóp þeirra sem njóta myndlistar. Í fyrsta sinn er komin sjóður sem leggur áherslu á framleiðslu verkefna eingöngu tengd myndlist, en ekki líknar- og menningarmál í sama flokki eins og fyrirkomulagið er hjá mörgum samfélagssjóðum. Í fyrsta sinn er mögulegt að þróa verkefni út frá listrænu gildi þess og tryggt að verkefnið verði metið á þeim forsendum, en ekki til hvaða markhóps kynningarefnið nær. Í fyrsta sinn er hægt að gera raunhæfa kostnaðaráætlun og fá úthlutað þeirri fjárhæð sem sótt er um, en ekki tilfallandi upphæð sem er í engu samhengi við framsett gögn. Nú loksins er hægt að leita í ákveðinn farveg með innihaldsrík verkefni með listamönnum og fagaðilum úr geiranum. Myndlistarsjóður er hvatning til þess að bretta upp ermarnar og framleiða verkefni sem stuðla að frumsköpun og framþróun í íslenskri myndlist. Með þessa uppbyggingarstarfsemi síðustu ára að leiðarljósi er komin grundvöllur fyrir því að fara að fordæmi Evrópusambandsins og auka stuðning og fjárframlög til lista. Höfum trú á þessum úttektum og tölfræðinni, höfum trú á listamönnum og fagmönnum, höfum trú á listum sem hreyfiafli. Höldum áfram að byggja upp stuðningskerfi fyrir listir á Íslandi og þar með stöðugt starfsumhverfi fyrir þá sem hafa atvinnu af listum. Greinin er birt í tilefni Dags Myndlistar
Myndlist og hugsun Hvaða áhrif hefur listin á það hvernig við tökum ákvarðanir í okkar daglega lífi? 30. október 2014 10:06
Fréttir af akri allsnægtanna Hugrekki og gagnrýnin, skapandi hugsun eru undirstaðan í starfi myndlistarmannsins. 31. október 2014 09:18
Skál fyrir myndlistinni Í kaffi, bjór, djús eða kampavíni, eða bara Egils Kristal ef maður vill vera betri en hinir. Já, bræður og systur, í dag er dagur myndlistar. Dagur listformsins sem mótar sjónrænan veruleika okkar niður í minnstu smáatriði. 1. nóvember 2014 07:00
Að staldra við Við Sæbrautina er hægt að sjá nokkuð einstakt listaverk eftir Sigurð Guðmundsson sem nefnist Fjöruverk. 29. október 2014 09:02
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun