Túnfiskur frá Íslandi seldur í Tókýó Jakob Bjarnar skrifar 1. september 2014 12:55 Túnfiskur er eftirsóttur í Japan. VÍSIR/AFP
Túnfiskur frá Íslandi var seldur á fiskmarkaði í Tókýó í síðustu viku og var hver fiskur seldur á 680 þúsund krónur að meðaltali, en meðalvigt fiskanna eins og þeir voru seldir, var 132 kíló. Morgunblaðið greinir frá þessu í morgun. Fyrir hvert kíló fengust því ríflega fimm þúsund krónur en vonir standa til að en hærra verð fáist fyrir túnfisk þegar líður á haustið. Í gær var 14 túnfiskum landað í Grindavík í viðbót við þá 11 sem áður höfðu veiðst.Jóhann Helgason er í framleiðslustjórn hjá Vísi og hann segir að öll meðferð verði að vera til fyrirmyndar í ferlinu sem ekki er flókið hvað landvinnsluna varðar. Túnfiskurinn er hausaður og svo beint út í flugvél og út. Að sögn Jóhanns eru menn við veiðar sunnan Eyja og er um 12 tíma stím á miðin. Stýrimaður á Jóhönnu er Haraldur Einarsson: „Þetta eru línuveiðar með flotlínu sem er um 15 til 20 faðma frá yfirborðinu," segir Haraldur en á línuna festa þeir smokkfisk. Þeir kasta einni línu út en á henni eru 950 krókar. Stundum gerist það að margir fiskar hlaupa á línuna í einu og síðast fengu þeir mest 7 fiska. „Það gengur mikið á. Það verður að þreyta þá og það getur tekið allt að hálftíma. Taumarnir eru losaðir af og ef það er fiskur á línunni verður auðvitað allt vitlaust. Þá er hann settur á þreyttara sem er eins og stórt hjól á veiðistöng. Hann snuðar hjólið þannig að maður verður að vanda sig við að slíta ekki. Þetta er ægilega kraftmikill fiskur. Þá eru settir í hann þrjú spjót og á endanum á því er svona krókur, svona agnald, sem er rekið í hausinn á þeim. Spjótið losnar frá en agnaldið verður eftir með spottum í. Þá er öryggi, þá er hann fastur," segir Haraldur Einarsson Þá er fiskurinn hífður um borð og settur krókur, sem er kallaður ífæra, í gegnum kjaftinn á honum. 30 tonnum af túnfisk er úthlutað í kvóta, þar af fær Vísir 25, auk þess sem gert er ráð fyrir meðafla á makrílveiðum og svo hugsanlega á sjóstöng.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira