Formúla 1

Horner: Margar ástæður fyrir erfiðleikum Vettel

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vonsvikinn Vettel og kyrrstæður RB10 var algeng sjón í upphafi tímabilsins.
Vonsvikinn Vettel og kyrrstæður RB10 var algeng sjón í upphafi tímabilsins. Vísir/Getty
Liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, Christian Horner segir margar þætti valda Vettel erfiðleikum í ár. Þar á meðal sé staðreyndin að Sebastian Vettel er ekki að berjast um heimsmeistaratitilinn.

Vettel, fjórfaldur ríkjandi heimsmeistari hefur átt erfitt með halda í við nýjan liðsfélaga sinn. Daniel Ricciardo sem kom til Red Bull liðsins fyrir tímabilið hefur unnið tvær keppnir og náð sér í 131 stig, Vettel er búinn að sækja 88 stig.

Horner telur að álagið sem hafi verið síðustu fimm tímabil, þar sem Vettel barðist um heimsmeistaratitilinn og vann fjórum sinnum, hafi tekið sinn toll.

„Í fyrsta lagi, þegar þú hefur barist um titilinn í fimm ár, þá er mikið af orkunni búið, en það er ekki aðal vandamálið. Sebastian hafði einstakt lag á að sækja tíunduhluta úr sekúndu úr bílnum á undanförnum árum. Hann er mjög næmur á hegðun bílsins, sérstaklega þegar hann bremsar,“ sagði Horner.

Horner telur að Vettel hafi tapað hluta af næmni sinni. „Hann ók eins og ballerína, dansaði á inngjöfinni og bremsunum,“ bætti Horner við.

Red Bull og Renault áttu í erfiðleikum með að koma RB10 bílnum af stað, hvað þá að fara að vinna keppnir. Á æfingum fyrir tímabilið og fyrri hluta tímabilsins var bíllinn verulega óáreiðanlegur og erfiður í akstri.

Horner telur að hraðinn sem Vettel sýndi í Ungverjalandi sanni að hann sé að ná fyrri styrk og muni fara að bíta frá sér fljótlega.


Tengdar fréttir

Horner vill heyra meira frá ökumönnum

Christian Horner keppnisstjóri Red Bull liðsins telur mikilvægt að ökumenn í Formúlu 1 fái frelsi til að tjá sína skoðun á hlutunum.

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?

Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt

Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×