Formúla 1

Bottas: Williams verður áfram í baráttunni 2015

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bottas í miðri beygju í ungverska kappakstrinum.
Bottas í miðri beygju í ungverska kappakstrinum. Vísir/Getty
Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1 segist sannfærður um að góður árangur liðsins að undanförnu muni halda áfram á næsta ári.

Williams liðið hefur komið gríðarlega á óvart á tímabilinu. Á tímabilinu 2013 náðu Bottas og Pastor Maldonado einungis í fimm sitg samtals og liðið endaði í níunda sæti í keppni bílasmiða.

Núna þegar tímabilið er rúmlega hálfnað situr Williams í fjórða sæti í keppni bílasmiða með 135 stig. Ferrari er í þriðja sæti með einungis sjö stiga forskot.

„Við erum í góðum málum því við vitum að bíllinn okkar er í grunninn mjög góður. Það hefur verið gott að breyta honum og bæta og nú verðum við bara að halda þróuninni áfram,“ sagði Bottas og Williamsbílinn.

Bottas segir að helsti munurinn á þessu tímabili og því síðasta sé sá að uppfærslur á bílnum í fyrra virkuðu ekki en í ár séu þær að skila tilætluðum árangri.

„Tengingin á milli loftflæðigangnanna og brautanna hefur verið miklu betri. Það hefur meiri orka farið í að endurskipuleggja starfsemina í verksmiðjunni og loftflæðigöngin hafa verið fínstillt og þá smellur þetta saman,“ sagði Bottas sem eygir fyrsta sætið í næstu tvemur keppnum.


Tengdar fréttir

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?

Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

Bílskúrinn: Kristjáns-horn og klöguskjóður

Eftir gríðarlega spennandi breskan kappakstur þar sem heimamaðurinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann er kominn tími til að skoða Bílskúrinn, léttu hliðina á Formúlu 1 á Vísi.

Williams vill fara að vinna keppnir

Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum.

Bottas: Mercedes gæti fundið fyrir FRIC banni

Valtteri Bottas, ökumaður Williams telur að Mercedes liðið verði fyrir mestum áhrifum ef tengd fram og aftur fjöðrun (FRIC) verður bönnuð. Bottas telur að bannið myndi ekki hafa áhrif á Williams liðið.

Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt

Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×