"Okkur var sópað inn á lögreglustöðina þar sem sumar fengu sjokk“ Ellý Ármanns skrifar 1. júlí 2014 14:15 Karen Soffía, Sigrún Kaya, Glódís, Guðrún Inga og Kristrún Klara. Hirðljósmyndari hjólafólksins Guðmundur K Einarsson „
Valkyrjur eru bifhjólakonur sem vita ekkert jafn skemmtilegt og að finna vindinn strjúka mjúkt um vanga sitjandi á mótorfák á ferð í góðra vina hópi. Valkyrjur eru sjálfstæðar og óháðar klúbbum, félagasamtökum og reglum þeirra. Konur sem koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Hér er engin skuldbundin neinu, hvorki félagsgjöldum, fundarhöldum eða þess háttar,“ segir Sigrún Kaya Eyfjorð Valkyrja sem gaf okkur leyfi til að birta myndirnar sem skoða má hér af Valkyrjunum.Halldóra Sigurðardóttir.Spurð um meðfylgjandi myndir segir Kaya: „Á myndunum erum við í ferð sem byrjaði á veitingastaðnum Satt á Hótel Natura þar tekið var á móti okkur með yndislegum morgunmat. Þaðan lá leiðin austur fyrir fjall í miklum hita og glampandi sól. Þar, flestum að óvörum, var uppákoma þar sem lögreglan á Selfossi tók á móti okkur og vísaði hópnum inn á lögreglustöðina þar sem sumar fengu sjokk því þær héldu að þær hefðu gert eitthvað af sér en þetta var vinaleg heimsókn þar sem okkur var boðið í kaffi og meðlæti á lögreglustöðinni í boði Guðnabakarí á Selfossi. Þar fengum við svo kynningu á greiningarstöð umferðarslysa sem var mjög fróðlegt og snerti við okkur verulega og er góð áminning um að fara að öllu með gát og sýna ýtrasta öryggi í umferðinni.“Jóhanna Gautsdóttir.„Leiðin lá þaðan í Sólheima Grímsnesi, þar sem við borðuðum kjötsúpu á Geysi og heimsóttum svo sveitabæ sem nefnist Efri Dalur II þar sem við fengum heimagerðan ís. Þar var verulega gott að kæla sig niður eftir fjöruga ferð í frábæru veðri,“ segir Sigrún Kaya.Sigrún Kaya, Kristrún Klara og Marín Björk.Glódís Alda Baldursdóttir.Karen Soffía Kristjánsdóttir.Næsta ferð Valkyrjanna verður farin laugardaginn 26. júlí að sögn Sigrúnar Kayu.Hjólavinir og Valkyrjur á Facebook.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira