„Ég held ég sé frelsuð frá þessu ógeði“ Ellý Ármanns skrifar 4. júlí 2014 11:00 Súsanna hefur verið reyklaus í eitt og hálft ár. Hún hefur sparað 324 þúsund á þeim tíma. mynd/súsanna
Súsanna Þórhallsdóttir 62 ára hætti að reykja fyrir einu og hálfu ári. Við spurðum hana hvað kom til að hún ákvað að drepa í sígarettunni og hvernig hún fór að því. „Mig hafði alltaf langað til að hætta að reykja. Ég hélt ég myndi aldrei geta það en núna er þetta svo auðvelt. Ég bara fékk ógeð,“ segir Súsanna þegar samtal okkar hefst. Súsanna minnkaði reykingarnar og á endanum kvaddi hún sígaretturnar. „Ég reykti aðeins á kvöldin í eitt ár - ég var komin niður í fjórar sígarettur á dag,“ útskýrir hún.Fékk svima Hvað ráðleggur þú fólki sem þráir að hætta?„Það er gott að minnka þetta þegar maður getur. Það virkaði fyrir mig. Ég ákvað að vera ekki að reykja á daginn því ég vissi að ég mátti kveikja mér í sigarettu á kvöldin. Síðan hætti ég alveg þegar ég fór að byrja að fá svima þegar ég kveikti mér í. Þetta var ekkert mál en það munar að reykja aðeins fjórar sígarettur á dag í staðinn fyrir tuttugu. Þá reykti ég aðeins þessar fjórar án samviskubits.“„Ég vorkenni öllum sem reykja og tala nú ekki um þeim sem eru að reyna að hætta.“Þyngdist en ætlar að létta sigÞegar talið berst að þyngdaraukningu í kjölfarið segir Súsanna:„Já, já, já ég þyngdist þegar ég hætti að reykja. Ég er búin að þyngjast um 15 kg og næsta mál hjá mér er að losa mig við kílóin. Það er ekki heldur hollt að vera of feitur. Þó ég sé búin að þyngjast þá langar mig alls ekki að byrja að reykja aftur. Það er alls ekki inn í myndinni.“„Ég held ég sé frelsuð frá þess ógeði að reykja. Mér hefur ekki dottið í hug að kaupa mér sígarettur síðan ég hætti. Mér verður óglatt við tilhugsunina,“ segir Súsanna.Reyklaus.is
Mest lesið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Fleiri fréttir „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Sjá meira