Lífið

Scandal-stjarna handtekinn fyrir ölvun á almannafæri

Columbus Short
Columbus Short Vísir/Getty
Leikarinn og dansarinn Columbus Short var handtekinn þann fjórða júlí, fyrir ölvun á almannafæri.

Short var staddur á barnum Katy Trail Ice House í Dallas í Texas-fylki. Short hrópaði ókvæðisorð að lögreglumanni og var handtekinn í kjölfarið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrrverandi Scandal-stjarnan kemst í kast við lögin. Hann hefur verið handtekinn oftar en einu sinni á árinu, meðal annars fyrir slagsmál á bar í mars og fyrir hávaðasamt rifrildi við eiginkonu sína þar sem hann hótaði henni lífláti.

Í apríl tilkynnti stjarnan að hann myndi ekki leika í fjórðu seríu þáttaraðarinnar Scandal, þar sem hann lék hlutverk Harrison Wright. 

Short hefur áður verið sakaður um að ganga í skrokk á fólki. Árið 2010 var hann sakaður um að hafa kjálkabrotið mann að nafni Jason Hill á körfuboltaleik, en Hill fékk nálgunarbann á Short í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.