Formúla 1

Mercedes menn skiptu með sér föstudagsæfingunum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes menn eru ekki perluvinir þessi misserin.
Mercedes menn eru ekki perluvinir þessi misserin. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins en liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Fyrri æfingin var viðburðarík, Sebastian Vettel snérist, Daniel Ricciardo liðsfélagi hans hjá Red Bull fylgdi honum næstum því út af brautinni.

Bæði Felipe Massa á Williams og Pastor Maldonado á Lotus tóku smá krók yfir mölina utan brautar við beygju 3.

Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji á æfingunni. Það þarf þó ekki að þýða að í tímatökunni muni Ferrari bíllinn reynast samkeppnishæfur við Mercedes bílinn. Það sannaðist í Kanada þegar Alonso átti einni mjög góða æfingu á föstudeginum en gat svo ekki keppt við Mercedes fákana í tímatökunni.

Á seinni æfingunni var Vettel enn í vandræðum hann fór smá spöl í mölinni í beygju 8.

Jenson Button á McLaren varð áttundi, hann glímdi talsvert við bíl sinn og lýsti honum sem „óökuhæfum“. Það eru eflaust mikil vonbrigði fyrir McLaren liðið sem hafði bundið miklar vonir við nýjar uppfærslur fyrir keppnina í Austurríki.

Alonso varð aftur þriðji, fyrir Ferrari aðdáendur hefur það eflaust verið til að auka von um betri tíð. Alonso sagði eftir æfinguna „allt getur gerst.“ Athugasemd hans má túlka þannig að Ferrari telji sig hugsanlega eiga einhver tromp upp í erminni þegar kemur að tímatökunni á morgun.

Ljóst er að tímatakan verður spennandi á morgun, líkurnar gefa til kynna að Mercedes menn verði á fremstu ráslínu en hver verður þar fyrir aftan er stóra spurningin.



Tímatakan fyrir austurríksa kappaksturinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 11:50 á morgun. Keppnin er svo á dagskrá klukkan 11:30 á sunnudag.


Tengdar fréttir

Raikkonen: Ekki fleiri tilviljanakenndir snúningar

Kimi Raikkonen hefur átt í ítrekuðum vandræðum með að halda Ferrari bíl sínum í skefjum í beygjum á tímabilinu. Ótt og títt virðist bíllinn snúast án nokkurrar teljandi ástæðu. Raikkonen telur að nú sé liðið búið að finna lausnina á vandanum.

Rosberg: Ég hef sálfræðilegt forskot á Hamilton

Nico Rosberg telur að hann hafi nú sálfræðilegt forskot á lisðfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Rosberg telur að hann hafi snúið taflinu við þegar hann náði 22 stiga forskoti á Hamilton í síðustu keppni.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada

Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.

Webber: Ricciardo ekki gert nein mistök

Ástralinn Mark Webber hrósaði samlanda sínum og arftaka hjá Red Bull, Daniel Ricciardo eftir að sá síðarnefndi vann kanadíska kappaksturinn á sunnudag.

Alonso og Hamilton fljótastir

Tvær æfingar fyrir kanadíska kappaksturinn fóru fram í gær. Fernando Alonso á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins en Lewis Hamilton á Mercedes á þeirri seinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×