Formúla 1

Felipe Massa á ráspól í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Massa átti frábæran dag í dag.
Massa átti frábæran dag í dag. Vísir/Getty
Felipe Massa varð fyrstur til að stöðva ráspólaröð Mercedes liðsins með ráspól í Austurríki. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas var annar og Nico Rosberg varð þriðji. Þetta var fyrsti ráspóll Felipe Massa síðan í Brasilíu 2008.

Dómarar keppninnar voru uppteknir við að ógilda tíma ökumanna sem fóru með öll fjögur dekkin út fyrir brautina í síðustu beygjunni. Þeir ógiltu tímatökuhringi af Lewis Hamilton og Nico Hulkenberg í síðustu lotunni.

Williams hafði ekki ná ráspól síðan í Singapúr 2003.



Ricciardo átti góðan dag á Red Bull Ring í dag.Vísir/Getty
Í fyrstu lotu tímatökunnar duttu út sex hægustu ökumennirnir. Báðir Caterham ökumennirnir, Marussia og Sauber ökumennirnir duttu út. Daniil Kvyat á Toro Rosso tróð sér upp á milli Mercedes mennina í annað sæti í fyrstu lotu. Lewis Hamilton varð fljótastur og Nico Rosberg þriðji.

Í annarri lotu fór Fernando Alonso út af brautinni og sýndi rallý hæfileika sína og hélt bílnum beinu og kom honum inn á brautina aftur. Ferrari menn voru ekki eins sterkir í tímatökunni og föstudagsæfingarnar gáfu tilefni til að búast við.

Þeir sem duttu út í annarri lotu voru, báðir Lotus ökumennirnir, ásamt Sebastian Vettel á Red Bull, Jean-Eric Vergne á Toro Rosso, Jenson Button á McLaren og Sergio Perez á Force India.

Afleidd tímataka fyrir fjórfalda heimsmeistarann Vettel á heimavelli. Brautin sem ekið er um í Austurríki heitir Red Bull Ring. Hann tapaði fyrir liðsfélaga sínum, Ástralanum Daniel Ricciardo í sjötta skipti af átta tímatökum á tímabilinu.



Í þriðju lotu tímatökunnar gerðu Mercedes menn báðir mistök í fyrstu tilraun. Hamilton fór út af í annarri beygju og missti þar með af tækifærinu til að setja tíma í þriðju lotu.

„Góð braut og lítið af beygjum með löngum beinum köflum, við erum með bestu vélina svo vonandi get ég unnið upp sæti,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna.



„Svo áægður með liðið, þetta var frábært augnablik, það er langt síðan ég náð ráspól síðast, sem var í Brasilíu 2008 en við veðrum að einbeita okkur að keppninni á morgun,“ sagði Massa sem var himinlifandi með tímatökunna.

„Við þurfum að einbeita okkur að keppninni á morgun, frábær dagur fyrir Felipe og Williams,“ sagði Bottas sem náði sínum besta árangri í tímatöku í dag.

Hamilton átti slæman dag og gerði mistök í þriðju lotunni. Hann fór snérist og gat ekki reynt aftur.Vísir/Getty
Niðurstaða tímatökunnar.

1.Felipe Massa - Williams

2.Valtteri Bottas - Williams

3.Nico Rosberg - Mercedes

4.Fernando Alosno - Ferrari

5.Daniel Ricciardo - Red Bull

6.Kevin Magnussen - McLaren

7.Daniil Kvyat - Toro Rosso

8.Kimi Raikkonen - Ferrari

9.Lewis Hamilton - Mercedes

10.Nico Hulkenberg - Force India

11.Sergio Perez - Force India - fær 5 sæta refsingu frá Kanada

12.Jenson Button - McLaren

13.Sebastian Vettel - Red Bull

14.Pastor Maldonado - Lotus

15.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

16.Romain Grosjean - Lotus

17.Adrian Sutil - Sauber

18.Esteban Gutierrez - Sauber

19.Jules Binachi - Marussia

20.Kamui Kobayashi - Caterham

21.Max Chilton - Marussia

22.Marcus Ericson - Caterham

Keppnin er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 11:30 á morgun.


Tengdar fréttir

McLaren stefnir á að loka bilinu

McLaren liðið er sannfært um að það sitji á uppfærslum sem dugi því til að keppa við fremstu lið strax í næstu keppni.

Rosberg: Ég hef sálfræðilegt forskot á Hamilton

Nico Rosberg telur að hann hafi nú sálfræðilegt forskot á lisðfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Rosberg telur að hann hafi snúið taflinu við þegar hann náði 22 stiga forskoti á Hamilton í síðustu keppni.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada

Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×