Formúla 1

Hefði átt að stöðva Perez fyrir áreksturinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Perez eftir áreksturinn við Massa
Perez eftir áreksturinn við Massa Vísir/AFP
Rob Smedleytelur að Force India hefði átt að láta Sergio Perez hætta keppni áður en áraksturinn varð vegna bremsuvandræða.

Smedley sem er yfirmaður þróunarmála hjá Williams liðinu og fyrrum keppnisverkfræðingur Felipe Massa var óánægður með háttsemi Force India liðsins.

Dómarar úrskurðuðu að Perez væri ábyrgur fyrir árekstrinum og verður hann færður aftur um fimm sæti á ráslínu í næstu keppni. Smedley telur að sökin liggji hjá Force India, liðið hefði átt að koma í veg fyrir atvikið. Liðið hefði átt að kalla Perez á þjónustusvæðið og hætta keppni.

„Allt frá hring 67 töluðu þeir um að vera ekki með neinar bremsur að aftan. Þá heyrðum við talstöðvarskilaboðin en það gæti verið að þau hafi farið í loftið fyrr,“ sagði Smedley.

„Perez sagðist ekki vera með neinar bremsur að aftan en liðið hvatti hann til þess að halda áfram. Aðeins ef hann gæti ekki haldið áfram var honum bent að koma á þjónustusvæðið,“ sagði Rob Smedley.

„Hvers vegna þú lætur bílinn þá vera áfram úti með þetta vandamál er mér smá ráðgáta. Í okkar tilfelli var það Valtteri og við sögðum honum að hægja á sér, spara bremsurnar og vélina, sérstaklega bremsurnar því annars getur skapast hætta. Við urðum að hægja á og tapa stigum,“ sagði Smedley sem var allt annað en sáttur við ákvörðun Force India að láta Perez halda áfram.

„Lewis Hamilton, vegna véla og bremsuvandamála, varð að stöðva bílinn og það er maður sem er að berjast um heimsmeistaratitil. Ég er pínu pirraður svo ég segi ekki meira yfir þessu,“ sagði Smedley að lokum.


Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo vann í Kanada

Daniel Ricciardo vann gríðarlega spennandi kappakstur í Kanada. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Ricciardo kom fyrstur í mark | Myndband

Daniel Ricciardo varð hlutskarpastur í Formúlu 1 kappakstri gærdagsins sem fór fram í Kanada. Þetta var hans fyrsti sigur í keppninni, en hann ekur fyrir Mercedes.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada

Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×