Göngubrú lokað vegna ástarlása Randver Kári Randversson skrifar 10. júní 2014 12:29 Pont des Arts brúin í París. Vísir/AFP
Göngubrúin Pont des Arts yfir ána Signu í París var lokuð í nokkrar klukkustundir á sunnudag vegna þess að 2,4 metra langt járnhandrið hlaðið svokölluðum ástarlásum hrundi fyrir gangveginn. Reuters segir frá þessu. Hengilásar með nöfnum ástfanginna para fóru að birtast á brúm í París og fleiri borgum í Evrópu fyrir um fimm árum síðan. Með þessu vilja ástfangnir Evrópubúar sýna einskonar tákn um styrkleika ástarsambanda sinna. Lyklunum að lásnum er oftast hent í ána. Engum varð meint vegna atviksins á sunnudag og opnaði brúin aftur í gær þegar búið var að skipta járnhandriðinu út fyrir viðarplanka en atvikið sýnir þó þann vanda sem þetta uppátæki er farið að valda. Handrið fjölmargra brúa í París eru nú nánast þakin slíkum ástarlásum, sem veldur því að mörg handrið er ekki talin lengur örugg vegna þess mikla þunga sem lásarnir leggja á þau. Borgaryfirvöld í París hafa mælst til þess að fólk leiti annarra leiða til að tjá ást sína hvort á öðru en hafa ekki gripið til neinna íþyngjandi aðgerða af ótta við að spilla orðspori Parísar sem borgar ástarinnar.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Sjá meira