Skoðun

Pólitíkusar sem brjóta öll lögmál

Þóranna K. Jónsdóttir skrifar
Í nýafstaðinni kosningabaráttu verð ég að viðurkenna að ég undraðist hvernig víða var staðið að. Ég gat ekki gert að því að hugsa sem svo að pólitíkusar hefðu mjög gott af því að læra grundvallarlögmál markaðsfræðinnar.

Markaðsgúrúinn Al Ries sagði einhvern tímann að það væru bara tvær reglur fyrir lítil fyrirtæki og markaðssetningu: 1) að hugsa stórt 2) að fylgja lögmálum markaðsfræðinnar.

Lögmálin fimm

Svo hér eru fimm lögmál markaðsfræðinnar sem myndu skila pólitíkusum (og fyrirtækjum) meiri árangri ef þeir fylgdu þeim:

Nr. 1: Það er öllum sama um þig.

Við erum öll sjálfhverf og hugsum bara um hvað hentar „mér og mínum“. Það er bara mannlegt. Ef þú ætlar að ná sambandi við fólk þá virkar „ég, um mig, frá mér, til mín“ ekki – láttu allt snúast um þann sem þú vilt ná til.

Nr. 2: Markaðssetning tekur tíma.

Fólk kýs þig ekki nema það þekki þig, líki við þig og treysti þér og það gerist ekki á einni nóttu. Ekki bara tala við mig korter í kosningar.

Nr. 3: Ekki bara markaðssetja þig rétt fyrir kosningar. Þú þarft alltaf að vera að. Alveg eins og það þýðir ekki fyrir fyrirtæki að markaðssetja bara þegar salan minnkar, alveg eins og það þýðir ekki að fara í ræktina viku fyrir strandarferðina, þá eiga pólitíkusar alltaf að vera að. Burtséð frá markaðslegu ástæðunni þá ættu þeir líka bara alltaf að vilja vera í góðu sambandi við kjósendur.

Nr. 4: Lærðu að nota þau tól og tæki sem eru í boði og auðvelda þér hlutina. Það var magnað að sjá fólk sem t.d. hafði aldrei verið virkt á samfélagsmiðlunum vakna til lífsins og ætla að fara að nýta þá rétt fyrir kosningar. Eðli málsins samkvæmt skildi það ekki hvernig átti að haga sér þar. Það er ekki bara kjánalegt, það er heldur ekki vænlegt til árangurs.

Nr. 5: Ef þú ekki kannt eða getur, lærðu eða fáðu aðstoð – ok, þetta er ekki bundið við markaðsmál, bara góð regla sem afskaplega fáir pólitíkusar virðast kunna ;)

Markaðssetning fyrir pólitíkusa?

Ég bauð bæjarstjórninni í heimabæ mínum, Reykjanesbæ, að taka þátt í markaðsnámskeiði hjá mér í haust. Mig langar nefnilega mikið til að bæta ímynd míns góða bæjar. Kannski er kominn tími á að bjóða námskeið í almennri markaðssetningu fyrir pólitíkusa? ;)




Skoðun

Sjá meira


×