Koma kísilvera þrengir kosti Helguvíkurálvers Kristján Már Unnarsson skrifar 2. júní 2014 19:00
Nýgerðir samningar og viljayfirlýsingar um allt að fjögur kísilver auka þrýsting á fleiri nýjar virkjanir, sérstaklega ef jafnframt á að mæta óskum Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Forstjóri Landsvirkjunar bendir á fimm virkjanakosti, sem fyrri ríkisstjórn færði úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Landsvirkjun hyggst virkja jarðvarma á Þeistareyjum til að mæta orkuþörf kísilvers á Húsavík, og segist eiga næga orku í kerfinu fyrir kísilver United Silicon sem byrjað er að reisa í Helguvík. Öðru máli gegnir um orku fyrir kísilver sem Thorsil áformar í Helguvík, og þá er því einnig ósvarað hvaðan orka á að koma í sólarkísilver á Grundartanga.Frá Búrfellsvirkjun. Stækkun hennar er meðal þeirra kosta sem Landsvirkjun horfir til.Mynd/Stöð 2.Þótt þessir kaupendur ræði einnig við önnur orkufyrirtæki er helst horft til þess hvaða tækifæri Landsvirkjun hefur. Þar nefna menn Hvammsvirkjun í neðri Þjórsá, sem er eina virkjunin sem fékk grænt ljós í sérstakri flýtimeðferð verkefnisstjórnar rammaáætlunar í vetur, og einnig stækkun Búrfellsvirkjunar. „Og svo aðra kosti sem Alþingi ákveður að heimila,” segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. En fleiri vilja knýja á um orkukaup og þar ber hæst Norðurál vegna álversins í Helguvík, sem vegna orkuleysis stendur þar hálfbyggt. Gerðardómur fyrir tveimur árum skuldbindur HS Orku til að útvega hluta orkunnar en innkoma kísilveranna þrengir mjög möguleika Norðuráls til að fá þá orku sem á vantar. Ráðamenn Norðuráls vilja ekki tjá sig um þá nýju stöðu sem upp er komin en flestum sem til þekkja ber saman um að mjög erfitt verði að koma álverinu í Helguvík í gang án aðkomu Landsvirkjunar.Álver Norðuráls stendur hálfbyggt í Helguvík.Mynd/Stöð 2.Hörður Arnarson staðfestir að Landsvirkjun hafi verið í viðræðum við Norðurál vegna álversins. En hvaða tök hefur Landsvirkjun á að mæta þeirra óskum á næstu árum? „Það aftur ræðst af því hvað við ákveðum að nýta frekar. Það eru fjölmargir kostir í rammaáætlun sem á eftir að fjalla um.” Þar bendir forstjóri Landsvirkjunar á Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun og Hvammsvirkjun í neðri Þjórsá og Skrokkölduvirkjun og Hágönguvirkjun á hálendinu. „Þeir kostir sem voru komnir hvað lengst og eru þeir kostir sem voru færðir úr nýtingarflokki, - voru fimm kostir sem voru færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Alþingi er nú að fjalla um þá kosti,” segir Hörður Arnarson. Ef frá er talin Hvammsvirkjun verða allir þessi kostir í biðflokki að minnsta kosti næstu tvö árin þar sem verkefnisstjórn rammaáætlunar áformar ekki að gera nýja tillögu fyrr en haustið 2016, - nema stjórnvöld gefi fyrirmæli um nýja flýtimeðferð.
Tengdar fréttir Vilja hefja framkvæmdir við Helguvík í haust Forstjóri Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, vonast til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir við álverið í Helguvík í haust. Hann segist finna fyrir miklum velvilja frá íslenskum stjórnvöldum en hann fundaði með iðnaðarráðherra í morgun. 27. ágúst 2013 18:30 Skoðað hvort Landsvirkjun útvegi orku til Helguvíkur Skoðað verður hvort Landsvirkjun geti útvegað raforku til álversins í Helguvík, ef orkan fæst ekki annars staðar frá, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sem telur uppbygginguna afar mikilvæga, bæði fyrir Suðurnes og landið í heild. 27. maí 2013 12:15 "Erum að spyrna okkur hressilega frá botninum“ Samningar um tvö stórfyrirtæki í kísiliðnaði voru undirritaðir í dag og eru nú horfur á að fjögur ný kísilver rísi á Íslandi á næstu þremur árum. 28. maí 2014 19:00 Framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjast á morgun Framkvæmdir við kísilmálmverksmiðju United Silicon hefjast í Helguvík á morgun en allir lykilsamningar um verkefnið eru nú í höfn. 27. maí 2014 18:45 Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira
Vilja hefja framkvæmdir við Helguvík í haust Forstjóri Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, vonast til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir við álverið í Helguvík í haust. Hann segist finna fyrir miklum velvilja frá íslenskum stjórnvöldum en hann fundaði með iðnaðarráðherra í morgun. 27. ágúst 2013 18:30
Skoðað hvort Landsvirkjun útvegi orku til Helguvíkur Skoðað verður hvort Landsvirkjun geti útvegað raforku til álversins í Helguvík, ef orkan fæst ekki annars staðar frá, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sem telur uppbygginguna afar mikilvæga, bæði fyrir Suðurnes og landið í heild. 27. maí 2013 12:15
"Erum að spyrna okkur hressilega frá botninum“ Samningar um tvö stórfyrirtæki í kísiliðnaði voru undirritaðir í dag og eru nú horfur á að fjögur ný kísilver rísi á Íslandi á næstu þremur árum. 28. maí 2014 19:00
Framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjast á morgun Framkvæmdir við kísilmálmverksmiðju United Silicon hefjast í Helguvík á morgun en allir lykilsamningar um verkefnið eru nú í höfn. 27. maí 2014 18:45