Lífið

"Þessi staður er ekki sá versti“ - Emmsjé Gauti fékk sér húðflúr

Ellý Ármanns skrifar
Rapparinn Gauti Þeyr eða öllu heldur Emmsjé Gauti gaf nýverið út tónlistarmyndband.  

Við forvitnuðumst um nýja myndbandið sem sjá má hér neðst í grein en líka um nýja húðflúrið sem hann fékk sér á hægri upphandlegginn um helgina.

Hér má sjá upphafið á listaverkinu.
Hvað er þetta sem þú lést setja á upphandlegginn á þér?

„Þetta eru þau Jón Sigurðsson, Brynjólfur Sveinsson, Kjarval, Ragnheiður Jónsdóttir og Jónas Hallgrímsson en þau eiga það sameiginlegt að prýða íslensku seðlana sem eru í umferð,“ svarar Gauti. 

Af hverju? 

„Íslensku peningarnir eru fallegir. Þeir hafa hinsvegar leitt af sér misfallega hluti en þegar þetta fólk safnast saman í vasanum mínum þá er oftast gleði á bæ.  Þetta er hugmynd sem ég er búinn að vera með í kollinum í smá tíma og loksins fann ég stað og stund til að framkvæma hana.„

Eftir fjóra tíma jókst sársaukinn



Var þetta sársaukafullt?

„Það er misvont að fá sér flúr. Það er algjörlega persónubundið og fer eftir staðsetningu hvort það sé sársaukafullt. Þessi staður er ekki sá versti sem ég hef fengið mér flúr á hingað til en eftir fjóra klukkutíma var þetta farið að taka aðeins á og sársaukinn orðinn meiri. Þetta er samt þessi góði vondi sársauki og hann breytist yfir í gleði þegar verkið er tilbúið.“ 

Ólafía húðflúraði upphandlegg Gauta.
Hvaða snillingur gerði listaverkið?

„Það var hún Ólafía Kristjánsdóttir á Reykjavík Ink sem gerði flúrið á mig."

Hér má sjá endanlegu útkomuna.
„Við gerð myndbandsins var notuð myndavélaþyrla eða dróni til að ná skotinu en videoið er tekið upp í einni töku. Lagið er eftir ReddLights og textinn eftir mig. Arnar Þór Þórsson sá um tökur og Einar Bragi Rögnvaldsson um eftirvinnslu,“ segir rapparinn.



Tónlistarmyndbandið
 sem sjá má hér fyrir neðan er tekið upp hjá Hallgrímskirkju. Lagið er unnið úr sömplum frá kirkjubjöllunum að sögn Gauta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.