,,Við hittumst á barnum Celtic Cross og munum illa hvað fram fór" Ellý Ármanns skrifar 29. maí 2014 10:45 ,,Þessi mynd er tekin í Hjartagarðinum sælla minninga síðastliðið sumar." mynd/einkasafn dóru
Nú þegar örfáir dagar eru til kosninga höfðum við samband við Dóru Björk Guðjónsdóttur, 28 ára, sem er góð vinkona oddvita Pírata í Reykjavík, Halldórs Auðars Svanssonar, til að kynnast frambjóðandanum örlítið betur.,,Hér erum við á leiðinni á ævintýralegt Eistnaflug sumarið 2011."mynd/einkasafn dóruDóra, sem er háskólanemi og starfsmaður í búsetuþjónustu, hefur þekkt Halldór í hvorki meira né minna en tíu ár. Hún rifjar hér meðal annars upp þeirra fyrstu kynni. ,,Við Halldór höfum þekkst frá árinu 2004 í gegnum sameiginlega vini. Við hittumst á barnum Celtic Cross og munum illa hvað fram fór, en einn góðvinur okkar beggja mun hafa slasast lítillega. Við skulum láta smáatriðin liggja milli hluta en við höfum í raun verið bestu vinir síðan þá," segir Dóra þegar tal okkar hefst. Spurð um vin sinn segir hún: ,,Halldór er eðalnjörður af guðs náð og minglar í nánast hvaða félagsskap sem er. Það er til dæmis fullkomlega eðlilegt að bjóða Halldóri í staffapartý hjá fyrirtækjum sem hann vinnur ekki hjá og taka hann með á vandræðaleg stefnumót sem tengjast honum ekki neitt. Hann getur talað um nánast hvað sem er og býr yfir óhemjuþekkingu á öllu mögulegu. Hann skilur vel mikilvægi spontantleika í tilverunni og því til sönnunnar fengum við okkur tattú með upphafsstöfum Myers-Briggs persónuleikanna okkar árið 2009 til heiðurs vináttunni." Hvernig er sambandi ykkar háttað í dag? ,,Við Halldór hittumst svona af og til en bullum þó mest í hvoru öðru í gegnum samfélagsmiðla, ræðum landsins gagn og nauðsynjar og gerum grín að moggabloggurum. Halldór er gaurinn sem ég hringi í ef ég finn slasaðan kött, þarf að láta lesa yfir ritgerð eða langar í pizzu klukkan fimm að morgni." Blómstrar í pólitíkinni,,Halldór hefur blómstrað eftir að hann byrjaði að starfa með Pírötum og það er líkt og hann sé fyrst núna kominn á hárrétta hillu í lífinu. Við vinirnir sjáum náttúrulega minna af honum þessa dagana þegar hann vinnur eins og skepna að framboðinu en ég held að allir séu á einu máli um að hann eigi vel heima í þessu amstri. "Hugsjónamennska Halldórs fékk aldrei útrás í forrituninni ,,Forritunarstörfin hafa vissulega alltaf leikið í höndum Halldórs og hann er kannski einn af því fólki sem aldrei hefur þurft að hafa mikið fyrir því að vera brilljant á sínu sviði. Hugsjónamennskan og réttlætiskenndin fengu hins vegar aldrei útrás í forritarastörfunum sem skyldi en Pírataflokkurinn nær að sameina þetta tvennt á besta mögulega hátt. Við vinirnir höfum auk þess yndi af að hlusta á Halldór rúlla upp andstæðingum í rökræðum á sinn vingjarnlega og zenaða hátt," segir besta vinkona frambjóðandans að lokum.
Kosningar 2014 fréttir Tengdar fréttir ,,Ég veit að maður á ekki að vera að lesa þetta en oft gleymir maður sér og les" Við spurðum Hákon og Maríu um föður þeirra, Halldór Halldórsson borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. 27. maí 2014 17:45 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira
,,Ég veit að maður á ekki að vera að lesa þetta en oft gleymir maður sér og les" Við spurðum Hákon og Maríu um föður þeirra, Halldór Halldórsson borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. 27. maí 2014 17:45