Viðskipti innlent

"Ég hef verið talsmaður dreifðs eignarhalds“

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Bjarni Ármannsson bar vitni í morgun.
Bjarni Ármannsson bar vitni í morgun. visir/gva
„Ég var búinn að vera þarna forstjóri í tæp tíu ár. Árið 2006 var búin að vera erfitt ár, bæði í ytra og innra umhverfi banka,“ sagði Bjarni Ármannsson fyrrverandi forstjóri Glitnis banka í skýrslugjöf sinni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í Aurum málinu svokallaða í dag.

Bjarni sagði að í febrúar 2007 hefði FL Group verið komið með mjög stóran eignarhlut í bankanum. „Mér fannst þarna breytingar í aðsigi, ef það yrði kallað til hluthafafundar þá væri þarna einn aðili sem færi með valdið í félaginu. Þegar allt kom saman þá fannst mér þarna tilefni til að stíga til hliðar, ég hef verið talsmaður dreifðrs eignarhalds,“ sagði Bjarni aðspurður um hvers vegna hann hætti sem forstjóri Glitnis.

Hann sagðist hafa látið Jón Ásgeir Jóhannesson vita af óskum sínum þar sem hann taldi hann fara fyrir nýjum eigendum og greindi frá sínum efnahagslegum óskum við starfslokin þar sem hann vildi slíta efnahagsleg tengsl við bankann og selja hluti sem hann átti.

Bjarni sagðist ekkert þekkja til þess hvernig til kom að Lárus Welding, eftirmaður hans, var ráðinn inn í bankann né heldur hvort eða hvernig breytingar urðu á stefnu bankans eftir að hann hætti.

Síðustu vitnin ljúka nú skýrslugjöf sinni en að því loknu mun munnlegur málflutningur hefjast á því að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari mun halda ræðu sína. Hann áætlar að hún muni standa yfir í þrjár klukkustundir. Verjendur halda síðan sínar ræður en þær munu standa yfir fram á morgundag.

visir/gva
visir/gva
visir/gva

Tengdar fréttir

Fá að bera vitni símleiðis frá Dubai

Dómari í Aurum málinu hefur úrskurðað að heimilt sé að taka símaskýrslu af tveimur vitnum sem búsett eru í Dubai. Þá var kröfu sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum, hafnað.

Bjarni Ármannsson þarf að bera vitni

Sjö fyrrverandi sjórnendur Glitnis þurfa að bera vitni í Aurum Holding-málinu auk tveggja forsvarsmanna skartgripafyrirtækis í Duabi.

Hundruð tölvuskeyta á milli Jóns Ásgeirs og Lárusar

Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, forstjóri Glitnis, skiptust á tölvupósti í á fimmta hundrað skipti á tímabilinu sem til rannsóknar var í svokölluðu Aurum-máli sérstaks saksóknara, frá því síðla árs 2007 og fram á mitt ár 2008.

Báru vitni frá Dubai

Báðir sögðu að verðið á Aurum, 100 milljónir sterlingspunda hefði komið frá félaginu sjálfu.

Var trúnaðarvinur Lárusar

Jón Sigurðsson fyrrverandi forstjóri FL Group og stjórnarmaður í Glitni gaf skýrslu fyrir héraðsdómi í Aurum málinu í dag. Þá fór fram munnlegur málflutningur um skýrslur ákveðinna vitna fyrir dómi.

Aðalmeðferð í Aurum málinu í dag

Stefnt á að Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og Bjarni Jóhannesson, fyrrverandi viðskiptastjóri beri vitni í dag. Jón Ásgeir Jóhannesson beri vitni á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×