Viðskipti innlent

Báru vitni frá Dubai

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/GVA
Tvö vitni frá Dubai gáfu skýrslu í gegnum síma í við aðalmeðferð í Aurum Holding-málinu sem var framhaldið í dag. Þá greinir nokkuð á um hvenær hafi orðið ljóst að ekki yrði af kaupum á hlutafé í Aurum Holding.

Mennirnir tveir, þeir Nik-hil Sen-gupta og Taw-hid Abdullah, gáfu vitnaskýrslur sínar í gengum síma en áður hafði verið deilt um það fyrir dómnum hvort þeim yrði gert að koma til Íslands til að gefa skýrslur sínar.

Taw-hid Abdullah var aðalhluthafi og framkvæmdastjóri félagsins Damas sem átti í viðræðum við Baug og Aurum Holding um kaup á hlut í Aurum Holding um vorið 2008. Hann sagði að ekki hefði verið komist að neinu bindandi samkomulagi um kaupin í Aurum Holding og stjórn Damas hefði á endanum ákveðið að fara ekki í frekari fjárfestinar í Evrópu. Hann var nokkuð óljós varðandi nákvæmar tímasetingar hvað varðaði slit viðræðnanna.

Nik-hil Sen-gupta var bankastarfmaður í Dubai og átti þátt í því að kynna Aurum Holding fyrir Damas. Hann sagði að viðræðunum hefði verið hætt í lok september eða byrjun október þegar bankakreppan hefði hafist á Íslandi. Þá hefðu bæði íslenskir bankar og Aurum Holding verið komin í veruleg fjárhagsvandræði. Engin formleg slit hefðu verið á viðræðunum en þeim verið sjálfhætt á þessu stigi.

Báðir sögðu að verðið á Aurum, 100 milljónir sterlingspunda eða jafnvirði 19 milljarða íslenskra króna miðað við gengi í dag, hefði komið frá félaginu sjálfu og verið forsendur samningaviðræðna í upphafi.

Í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns í júlí 2008 sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd.

Sérstakur saksóknari telur að hlutabréfin í Aurum Holdings Ltd. hafi verið keypt á yfirverði. Þannig hafi stjórnendur og starfsmenn Glitnis misnotað aðstöðu sína hjá Glitni með lánveitingunni til FS38 ehf. Pálma og Jóni Ásgeiri til hagsbóta.

Sakborningar fjórir neita allir sök í málinu.

Síðasti til að gefa skýrslu fyrir hádegi er maður að nafni Jeff Blue sem var framkvæmdastjóri Baugs í London og munu vitnisburðir halda áfram fram eftir degi. Fleiri erlend vitni eiga eftir að koma fyrir dóminn ásamt mörgum fyrrverandi stjórnarmönnum Glitnis sem Hæstiréttur gerði að gefa skýrslur. Það gerði Hæstiréttur eftir að dómari málsins í héraðsdómi hafði úrskurðað að þeir hefðu engin bein tengsl við málið og þyrftu því ekki að koma fyrir dóminn.


Tengdar fréttir

Fá að bera vitni símleiðis frá Dubai

Dómari í Aurum málinu hefur úrskurðað að heimilt sé að taka símaskýrslu af tveimur vitnum sem búsett eru í Dubai. Þá var kröfu sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum, hafnað.

Var trúnaðarvinur Lárusar

Jón Sigurðsson fyrrverandi forstjóri FL Group og stjórnarmaður í Glitni gaf skýrslu fyrir héraðsdómi í Aurum málinu í dag. Þá fór fram munnlegur málflutningur um skýrslur ákveðinna vitna fyrir dómi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×