Opið bréf til stjórnarmanna Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndar Hulda María Magnúsdóttir skrifar 28. apríl 2014 13:44 Kæru stjórnarmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndar sveitarfélaga. Mig langar til að ítreka tilboð sem ég gerði ykkur í grein hér á Vísi fyrir skömmu. Þrátt fyrir yfir þúsund deilingar má vera að greinin hafi farið framhjá ykkur. Hún hét Reiða kennslukonan en slíkur titill vekur kannski ekki áhuga ykkar. Ég er 34 ára og með sex ára menntun að baki. Í umsjónarbekknum mínum eru 20 börn svo ég flokkast sem umsjónarkennari 2 (aukaflokkur), ég fæ auka launaflokk fyrir endurmenntun og annan fyrir framhaldsskólaréttindi. Og hvað fæ ég nú eiginlega í grunnlaun með alla þessa aukaflokka og þessa miklu menntun? Jú, heilar 331.000 krónur. Þegar ég nefni þessa launatölu verður undantekningalaust smá þögn áður en menn treysta sér til að tala áfram við mig.. Það er nefnilega þannig að þó að enginn haldi að grunnskólakennarar séu hálaunastétt þá gerir fólk sér heldur ekki grein fyrir því hversu lág launin eru. Við erum að tala um starf þar sem krafist er 5 ára háskólamenntunar. Hvað er krafist mikillar menntunar svo maður geti boðið sig fram til sveitarstjórna? Bara svona pæling, vona að þið takið spurningunni ekki illa. Svo er það þetta með bindingu vinnutímans. Ég hef heyrt fólk fullyrða að kominn sé tími á að kennarar fara að vinna eins og annað fólk. Og það virðist ykkur afar hugleikið að halda okkur í skólunum frá 8 til 16 eða 17. Hins vegar hef ég ekki enn séð neinn tala um þetta samhliða faglegum rökum, að rökstyðja þessar hugmyndir (svona eins og ég er alltaf að reyna að ítreka við unglingana sem ég kenni - að rökstyðja mál sitt). Ég væri vel til í að vinna eins og „annað fólk“. Með því geri ég ráð fyrir að sé átt við þá sem eru í hefðbundinni dagvinnu. Fólk sem fær kaffitímann sinn sama hvað, þarf sjaldan að taka vinnuna með sér heim og fær borgað ef það vinnur eitthvað fram yfir „hefðbundinn“ vinnutíma. Þannig er það sannarlega ekki hjá mér, ég fer í kaffi þegar bjallan hringir út og ef ég er svo óheppin að nemandi kemur að tala við mig eða foreldri hringir á þeim tíma þá missi ég bara kaffitímann minn því þegar bjallan hringir næst þarf ég líka að fara inn, svöng eða ekki. Það heyrir til undantekninga að ég sé ekki að sinna vinnunni heima og að hluta vel ég að hafa það þannig. Öll þessi brjálæðislega löngu sumarfrí okkar kennara (vinsamlega lesið þetta með mikilli kaldhæðni) koma nefnilega til af því að við eigum að vinna tæpa 43 tíma á viku (hefðbundin vinnuvika á Íslandi er 40 klukkustundir frá mánudegi til föstudags), þannig vinnum við af okkur sumarfríin. Kennarar eru hins vegar að meðaltali að vinna mun meira en þetta og allt upp undir 50 tíma á viku en fá þó alltaf bara borgað fyrir 43 tímana. En þetta vitið þið auðvitað allt saman kæru stjórnarmenn enda var könnunin, þar sem þetta kom fram, á vegum SÍS og FG. Ágætt samt að láta minna sig á svona stundum, þetta vill gleymast. Þá komum við aftur að tilboðinu sem ég minntist á í byrjun, ég bauð ykkur nefnilega að koma og skipta við mig í eins og tvær vikur eða svo. Ég geri nú ráð fyrir að tilboðið hafi ekki farið framhjá ykkur, miklu frekar að þið séuð bara enn að ákveða hvert ykkar fær að vera svo heppið að koma og kenna hópunum mínum. Í staðinn skal ég koma og vinna ykkar vinnu. Auðvitað myndum við líka skipta á launum, það gæti hugsanlega rétt minn fjárhag ögn af (hér gef ég mér að þið séuð með aðeins hærri grunnlaun en ég). Það verður reyndar að viðurkennast að ég hef ákaflega litla hugmynd um hvað felst í því að vinna ykkar starf en ég er fljót að læra og hversu erfitt getur þetta verið? Labbar maður ekki bara inn og græjar þetta? Það er að minnsta kosti sú tilfinning sem ég hef um viðhorf ykkar gagnvart mínu starfi, að þið hafið líka frekar litla hugmynd um hvað felst því sem kennarar gera á gólfinu daglega, kannski er bara tímabært að mæta á staðinn og kynna sér hvað raunverulega fer fram í skólum landsins, þá kannski skiljið þið hvers vegna kennarar eru ákveðnir í að krefjast löngu tímabærrar leiðréttingar á launum! Hlakka til að fá aragrúa af tilboðum í tölvupósti frá ykkur, get auðveldlega komið ykkur öllum að í skólum landsins!Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar