Lífið

Reif Zac Efron úr að ofan

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
MTV Movie-verðlaunin voru afhent í Los Angeles í nótt með pompi og prakt.

Leikarinn Zac Efron hlaut verðlaun fyrir bestu frammistöðu ber að ofan í kvikmyndinni That Awkward Moment.

Söngkonan Rita Ora afhenti Zac verðlaunin og gerði sér lítið fyrir og reif hann úr skyrtunni þegar hann kom upp á sviðið að taka við þeim.

Zac fannst það bara fyndið og hló dátt, ber að ofan á sviðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×