Ábyrgðin ekki stúlknanna Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 16. apríl 2014 16:29 Vísir/Getty „
Það var að sjálfsögðu ekki ætlunin að varpa ábyrgðinni á stúlkurnar á dreifingu mynda af þeim,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdarstjóri Barnaheilla um ummæli sín í fréttum RÚV í gær, þegar Vísir hafði samband við hana. Ummæli Ernu féllu í kjölfar fréttar Fréttablaðsins í gær um íslenska karlmenn sem skiptast á myndum af fáklæddum íslenskum stúlkum. Yngstu stúlkurnar eru á fjórtánda aldursári. Erna sagði í samtali við RÚV að aðalatriði væri að stúlkur leyfðu ekki myndatökur af sér þar sem hætta væri á að myndirnar gætu lent hvar sem er. Ummælin vöktu talsverða athygli og þótti mörgum sem Erna sneiddi framhjá hlut þeirra sem skiptast á myndunum. Hópur fólks sendi bréf á Ernu og vildi benda henni á að aðalatriði málsins sé að óprúttnir aðilar dreifi myndunum í leyfisleysi. „Vissulega er mikilvægt að kenna ungu fólki ábyrga tækninotkun og efla fræðslu um þær hættur sem geta m.a. fylgt notkun snjallsíma. Því fer hinsvegar fjarri að í þessu felist aðal atriði vandans. Aðalatriðið er að óprúttnir aðilar skuli dreifa myndum í óleyfi,“ segir í bréfinu. „Að segja að þetta sé „aðalatriðið“ er óheppilegt orðalag,“ segir Erna. Sem hefur sent svar til þeirra er sendu henni bréfið og útskýrt orð sín. Sú staða sé hins vegar enn sem komið er þannig að mynd sem einu sinni er orðin til geti alltaf farið á netið. Þaðan sé nær ógjörningur að uppræta hana. Því sé mikilvægt fyrir alla, bæði stúlkur og drengi, að vera meðvituð um slíkt.
Tengdar fréttir Segja klámið sem þeir deila vera íslenskt Á vefsíðu á netinu er klámi dreift sem fullyrt er að sé íslenskt. Svo virðist sem notendur síðunnar sæki í íslenskt klám. „Hún er íslensk. Alla vega stynur hún ójá... á íslensku,“ segir einn notandi síðunnar. 15. apríl 2014 16:44 Nektarmyndir af stúlkum á fermingaraldri á spjallsíðu Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. 15. apríl 2014 06:30 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira
Segja klámið sem þeir deila vera íslenskt Á vefsíðu á netinu er klámi dreift sem fullyrt er að sé íslenskt. Svo virðist sem notendur síðunnar sæki í íslenskt klám. „Hún er íslensk. Alla vega stynur hún ójá... á íslensku,“ segir einn notandi síðunnar. 15. apríl 2014 16:44
Nektarmyndir af stúlkum á fermingaraldri á spjallsíðu Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. 15. apríl 2014 06:30