Viðskipti innlent

Aserta-málið verður tekið efnislega fyrir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá þingfestingu málsins í héraði á síðasta ári.
Frá þingfestingu málsins í héraði á síðasta ári. Vísir/GVA
Hæstiréttur sneri í dag við frávísun Héraðsdóms Reykjaness í Aserta-málinu svokallaða þar sem Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynissyni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi Sigmundssyni er gefið að sök að hafa brotið gjaldeyrislög.

Málinu var vísað frá héraðsdómi þann 14. mars þar sem ákæra sérstaks saksóknara þótti ekki nægilega skýr. Ákæran uppfyllti ekki kröfur sakamálalaga um skýrleika ákæru. Á það féllst Hæstiréttur ekki eins og fram kemur í dómnum. Málið fer því aftur fyrir héraðsdóm sem mun taka það efnislega fyrir.

„Í málinu er af hálfu sóknaraðila byggt á því að varnaraðilar hafi haft með sér samverknað auk þess sem framsetning ákærunnar hefur að geyma lýsingu á framhaldsbroti. Að þessu gættu þykir verknaðarlýsing ákærunnar fullnægjandi, enda verður ekki gerð sú krafa þegar um er að ræða brot af því tagi að lýst sé sérstaklega samkynja eða eðlislíkum brotum í framhaldandi röð,“ segir í dómnum.

Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir brot gegn lögum og reglum um gjaldeyrismál og almennum hegningarlögum með því að hafa í sameiningu, á tímabilinu 25. mars 2009 til 2. nóvember 2009 haft milligöngu um gjaldeyrisviðskipti hér á landi án lögmætrar heimildar eða leyfis frá Seðlabanka Íslands.

Um leið var þeim gefið að sök að hafa staðið í ólögmætum gjaldeyrisviðskiptum vegna fjármagnshreyfinga á milli landa með úttektum af reikningum í íslenskum krónum í fjármálafyrirtækjum hér á landi, eins og segir í ákærunni gegn þeim.

Í dómi Hæstaréttar í dag kemur fram að ekki sé réttmætt að gera þá kröfu til sérstaks saksóknara að þætti hvers varnaraðila sé lýst sérstaklega þegar byggt sé á því að þeir hafi unnið saman.

„Þá breytir engu sú verknaðarlýsing í ákæru að varnaraðilar hafi ráðið yfir því erlenda félagi sem þar greinir, enda getur sakfelling ekki ráðist af formlegum tengslum þeirra við það félag,“ líkt og segir í dómnum.


Tengdar fréttir

Mættu ekki í fyrirtöku

Karl Löve Jóhannsson, Gísli Reynisson, Markús Máni Michaelsson Maute og Ólafur Sigmundsson mættu ekki á fyrirtöku dómsmáls sérstaks saksóknara gegn þeim í héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Aserta-málið: Málinu vísað frá

Gjaldeyrismáli sérstaks saksóknara gegn Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynissyni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi Sigmundssyni var vísað frá héraðsdómi í dag.

Kærir úrskurð Héraðsdóms í Aserta-málinu

"Við vorum ekki sammála niðurstöðu Héraðsdóms og höfum ákveðið að kæra til Hæstaréttar og fá úrskurð þar," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Fjöldi mála ónýtur vegna ófullkominna reglna

“Löggjafinn ákveður hvaða háttsemi telst refsiverð en ekki einhverjar undirstofnanir útí bæ," segir Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti við Háskóla Íslands.

Fékk greitt frá félagi sem hann rannsakaði

Rannsakandi Fjármálaeftirlitsins fékk greitt fyrir að afla viðskipta fyrir Aserta. Forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands fær ekki að bera vitni þar sem hann veitti sakborningum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti.

Frávísun í Aserta-málinu

Staðfestingu ráðherra skorti á reglur um gjaldeyrismál og því er ekki hægt að byggja sakfellingu á reglunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×