Aserta-málið verður tekið efnislega fyrir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. apríl 2014 17:14 Frá þingfestingu málsins í héraði á síðasta ári. Vísir/GVA
Hæstiréttur sneri í dag við frávísun Héraðsdóms Reykjaness í Aserta-málinu svokallaða þar sem Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynissyni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi Sigmundssyni er gefið að sök að hafa brotið gjaldeyrislög.Málinu var vísað frá héraðsdómi þann 14. mars þar sem ákæra sérstaks saksóknara þótti ekki nægilega skýr. Ákæran uppfyllti ekki kröfur sakamálalaga um skýrleika ákæru. Á það féllst Hæstiréttur ekki eins og fram kemur í dómnum. Málið fer því aftur fyrir héraðsdóm sem mun taka það efnislega fyrir. „Í málinu er af hálfu sóknaraðila byggt á því að varnaraðilar hafi haft með sér samverknað auk þess sem framsetning ákærunnar hefur að geyma lýsingu á framhaldsbroti. Að þessu gættu þykir verknaðarlýsing ákærunnar fullnægjandi, enda verður ekki gerð sú krafa þegar um er að ræða brot af því tagi að lýst sé sérstaklega samkynja eða eðlislíkum brotum í framhaldandi röð,“ segir í dómnum.Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir brot gegn lögum og reglum um gjaldeyrismál og almennum hegningarlögum með því að hafa í sameiningu, á tímabilinu 25. mars 2009 til 2. nóvember 2009 haft milligöngu um gjaldeyrisviðskipti hér á landi án lögmætrar heimildar eða leyfis frá Seðlabanka Íslands. Um leið var þeim gefið að sök að hafa staðið í ólögmætum gjaldeyrisviðskiptum vegna fjármagnshreyfinga á milli landa með úttektum af reikningum í íslenskum krónum í fjármálafyrirtækjum hér á landi, eins og segir í ákærunni gegn þeim. Í dómi Hæstaréttar í dag kemur fram að ekki sé réttmætt að gera þá kröfu til sérstaks saksóknara að þætti hvers varnaraðila sé lýst sérstaklega þegar byggt sé á því að þeir hafi unnið saman. „Þá breytir engu sú verknaðarlýsing í ákæru að varnaraðilar hafi ráðið yfir því erlenda félagi sem þar greinir, enda getur sakfelling ekki ráðist af formlegum tengslum þeirra við það félag,“ líkt og segir í dómnum.
Tengdar fréttir Mættu ekki í fyrirtöku Karl Löve Jóhannsson, Gísli Reynisson, Markús Máni Michaelsson Maute og Ólafur Sigmundsson mættu ekki á fyrirtöku dómsmáls sérstaks saksóknara gegn þeim í héraðsdómi Reykjaness í morgun. 8. janúar 2014 11:25 Aserta-málið: Málinu vísað frá Gjaldeyrismáli sérstaks saksóknara gegn Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynissyni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi Sigmundssyni var vísað frá héraðsdómi í dag. 14. mars 2014 13:44 Kærir úrskurð Héraðsdóms í Aserta-málinu "Við vorum ekki sammála niðurstöðu Héraðsdóms og höfum ákveðið að kæra til Hæstaréttar og fá úrskurð þar," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. 19. mars 2014 15:49 Fjöldi mála ónýtur vegna ófullkominna reglna “Löggjafinn ákveður hvaða háttsemi telst refsiverð en ekki einhverjar undirstofnanir útí bæ," segir Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti við Háskóla Íslands. 15. mars 2014 20:00 Fékk greitt frá félagi sem hann rannsakaði Rannsakandi Fjármálaeftirlitsins fékk greitt fyrir að afla viðskipta fyrir Aserta. Forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands fær ekki að bera vitni þar sem hann veitti sakborningum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti. 10. október 2013 07:00 Frávísun í Aserta-málinu Staðfestingu ráðherra skorti á reglur um gjaldeyrismál og því er ekki hægt að byggja sakfellingu á reglunum. 14. mars 2014 20:30 Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira
Mættu ekki í fyrirtöku Karl Löve Jóhannsson, Gísli Reynisson, Markús Máni Michaelsson Maute og Ólafur Sigmundsson mættu ekki á fyrirtöku dómsmáls sérstaks saksóknara gegn þeim í héraðsdómi Reykjaness í morgun. 8. janúar 2014 11:25
Aserta-málið: Málinu vísað frá Gjaldeyrismáli sérstaks saksóknara gegn Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynissyni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi Sigmundssyni var vísað frá héraðsdómi í dag. 14. mars 2014 13:44
Kærir úrskurð Héraðsdóms í Aserta-málinu "Við vorum ekki sammála niðurstöðu Héraðsdóms og höfum ákveðið að kæra til Hæstaréttar og fá úrskurð þar," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. 19. mars 2014 15:49
Fjöldi mála ónýtur vegna ófullkominna reglna “Löggjafinn ákveður hvaða háttsemi telst refsiverð en ekki einhverjar undirstofnanir útí bæ," segir Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti við Háskóla Íslands. 15. mars 2014 20:00
Fékk greitt frá félagi sem hann rannsakaði Rannsakandi Fjármálaeftirlitsins fékk greitt fyrir að afla viðskipta fyrir Aserta. Forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands fær ekki að bera vitni þar sem hann veitti sakborningum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti. 10. október 2013 07:00
Frávísun í Aserta-málinu Staðfestingu ráðherra skorti á reglur um gjaldeyrismál og því er ekki hægt að byggja sakfellingu á reglunum. 14. mars 2014 20:30