Innlent

Boðað til samstöðufundar í sjötta sinn á Austurvelli í dag

Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar
Mikið fjölmenni hefur verið á fundinum sem haldinn verður í sjötta sinn í dag.
Mikið fjölmenni hefur verið á fundinum sem haldinn verður í sjötta sinn í dag.
Boðað hefur verið til sjötta samstöðufundar við Austurvöll í dag.

Dagskráin hefst klukkan 14:45 með upphitunartónlist frá hljómsveitinni Hemúllinn.

Ræðumenn dagsins eru þau Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur, Einar Kárason rithöfundur og Benedikt Jóhannesson, ritstjóri.

Sif Traustadóttir mun sinna fundarstjórn.

Kröfur fundarins eru sem fyrr að viðræðum við Evrópusambandið verði ekki slitið án samráðs við þjóðina í atkvæðagreiðslu.

Fundurinn hefst klukkan 15:00




Fleiri fréttir

Sjá meira


×