Formúla 1

Finnst nýju hljóðin heillandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bernie Ecclestone og Jean Todt skrifa undir nýjan umgjarðarsamning fyrir F1 í Ungverjalandi 2013.
Bernie Ecclestone og Jean Todt skrifa undir nýjan umgjarðarsamning fyrir F1 í Ungverjalandi 2013. Vísir/Getty
Jean Todt, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) segist vera opinn fyrir því að gera V6 vélarnar háværari. Hann er einnig tilbúinn að skoða að leyfa meiri eldsneytisnotkun ef íþróttin fer að líða fyrir strangar reglur um eldsneytismagn.

Todt ítrekar þó að fara skuli varlega í sakirnar því Formúlu 1 keppnirnar munu verða meira spennandi. Brautirnar sem keppt er á henta misvel til framúraksturs. Hann bendir á að það sé venjulega fremur lítið um framúrakstur í Ástralíu. Þar hafi það ekki verið eldsneytisskortur heldur loftflæðið og lögun brautarinnar sem kom í veg fyrir aukinn framúrakstur.

„Ég er sannfærður um að í nánustu framtíð munum við sjá mikið af framúrakstri“ sagði Jean Todt. Hann bætti svo við „Við skulum því hinkra áður en við fellum dóma.“

Skoða þarf reglurnar um eldsneytisnotkun ef íþróttin fer að líða fyrir það hversu strangar þær eru. Einnig er vert að líta á hvað hægt er að gera varðandi vélarhljóðin, sem margir sakna samkvæmt Jean Todt.

„Hljóðið er augljóslega öðruvísi núna en ef það er vandamál og liðin eru sammála um það getum við skoðað aðferðir til að auka hávaðann, “ sagði Todt og bætti svo við „persónulega finnst mér nýju hljóðin heillandi.“


Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo - dæmdur úr leik

Heimamaðurinn Daniel Ricciardo hefur verið dæmdur úr leik fyrir að hafa notað of mikið eldsneyti í keppninni í morgun. Ástralinn endaði í öðru sæti keppninnar.

Rosberg sigraði í Ástralíu - Vettel kláraði ekki

Nico Rosberg á Mercedes sigraði fyrstu keppni timabilsins í viðburðaríkum kappakstri í Ástralíu í morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull var annar og nýliðinn Kevin Magnussen á McLaren varð þriðji.

Samantekt frá Ástralíukappakstrinum

Nýtt keppnistímabil hófst í Formúlu 1 í morgun þegar keppt var í Ástralíu. Fyrsta mótið lofar góðu fyrir framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×