Formúla 1

Bílskúrinn: Fimm hlutir sem komu ljós í Ástralíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ræsing í Ástralíu
Ræsing í Ástralíu Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes vann fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 með yfirburðum en Mercedes-bílnum hefur verið spáð mikilli velgengni. Lewis Hamilton, liðsfélagi hans, þurfti aftur á móti að hætta keppni.

Kevin Magnussen, danski nýliðinn hjá McLaren sló í gegn í sinni fyrstu keppni og náði bestum árangri nýliða eftir að Daniel Ricciardo á Red Bull var dæmdur úr leik.

Ljóst er að reglubreytingarnar eiga eftir að taka sinn toll á liðunum og hafa mikið að segja í byrjun tímabils en hvaða fimm atriði komu í ljós í fyrstu keppni ársins?

Við förum betur yfir það hérna í Bílskúrnum, léttari hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Mercedes-bíllinn lítur vel út en er ekki fullkominn.Vísir/Getty
Mercedes-bíllinn ekki fullkominn

Mercedes bíllinn er ekki skotheldur. Þrátt fyrir sannfærandi sigur Rosberg, þá datt liðsfélagi hans, Lewis Hamilton út á fjórða hring vegna vélabilunar.

Bíll hans hætti að ganga á öllum 6 strokkunum og vantaði því töluvert afl. Leiðir slík bilun einnig til þess að rafkerfin hætta að virka sem skyldi.

Mikið verk framundan hjá Lotus

Lotus hefur mikið að gera og margt að læra til að sjá fram á að ljúka kappakstri í náinni framtíð. Erfið tímataka á laugardaginn þar sem Pastor Maldonado náði ekki að setja tíma og Romain Grosjean var ekki sannfærandi.

Það setti tóninn fyrir keppnina þar sem komst hvorugur bíllinn í mark. Maldonando komst á hring 32 en þá bilaði rafkerfið sem snýr túrbínunni. Grosjean ók aðeins lengra en bíllinn hans bilaði á 45. hring.

Magnussen bætti met Hamiltons

Nýliðarnir voru að standa sig vel. Helst ber þar að nefna manninn í öðru sæti, Kevin Magnussen. Hann bætti met Lewis Hamilton yfir besta árangur í fyrstu keppni ferilsins.

Hamilton lenti í þriðja sæti í sinni frumraun en Magnussen bætti um betur og náði öðru sæti. Hann er einnig fyrsti Daninn sem kemst á verðlaunapall í Formúlu 1.

Annar nýliði, Daniil Kvyat, rússneski ökumaðurinn hjá Toro Rosso setti jafnframt met. Hann er nú yngsti ökumaðurinn til að ná í stig. Sebastian Vettel átti metið fyrir.

Williams lítur vel út

Williams bíllinn virðist mjög góður. Þrátt fyrir að aðeins annar bíll liðsins hafi lokið keppni þá stóð Valtteri Bottas sig mjög vel. Hann tók fram úr hverjum ökumanninum á fætur öðrum og hafði gríðar gott grip og nægan kraft.

Það verður spennandi að sjá hvernig liðinu mun ganga í ár. Hvar hefði Felipe Massa endað ef Kamui Kobayashi hefði ekki keyrt hann út úr keppninni í fyrstu beygju?

Ískur í dekkjum

Gríðarlegar breytingar fylgja V6-vélunum. Nú heyrist ískur í dekkjum ef þau læsast þegar ökumenn bremsa. Einnig heyrist í dekkjunum þegar ökumenn spóla af stað af þjónustusvæðinu. Bæði heyrist í brautarþuli og áhorfendum.

Það heyrðist til dæmis vel í áhorfendum þegar heimamaðurinn Daniel Ricciardo ók framhjá þeim.

Christian Horner keppnisstjóri Red Bull hafði orð á því eftir keppnina að hann hefði aldrei áður heyrt í áhorfendum á Formúlu 1 keppni.


Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo - dæmdur úr leik

Heimamaðurinn Daniel Ricciardo hefur verið dæmdur úr leik fyrir að hafa notað of mikið eldsneyti í keppninni í morgun. Ástralinn endaði í öðru sæti keppninnar.

Rosberg sigraði í Ástralíu - Vettel kláraði ekki

Nico Rosberg á Mercedes sigraði fyrstu keppni timabilsins í viðburðaríkum kappakstri í Ástralíu í morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull var annar og nýliðinn Kevin Magnussen á McLaren varð þriðji.

Samantekt frá Ástralíukappakstrinum

Nýtt keppnistímabil hófst í Formúlu 1 í morgun þegar keppt var í Ástralíu. Fyrsta mótið lofar góðu fyrir framhaldið.

Tímataka í Ástralíu - Hamilton fljótastur

Fyrstu tímatöku tímabilsins er lokið. Mercedes menn koma best undan vetri og náðu fyrsta og þriðja sæti. Rok og rigning settu strik í reikninginn í Ástralíu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×