Innlent

Furða sig á fundarboði ríkisstjórnarinnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, furðaði sig á því að þegar tilkynnt var um fundinn voru hvorki Bjarni Benediktsson né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þingsal.
Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, furðaði sig á því að þegar tilkynnt var um fundinn voru hvorki Bjarni Benediktsson né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þingsal. vísir/gva
Þingmenn stjórnarandstöðunnar furða sig á því að formenn flokkanna á þingi hafi verið boðaðir á fund síðar í dag til þess að ræða Evrópusambandsmálin. Margir kvörtuðu undan skömmum fyrirvara á fundarboðinu, en þingmenn heyrðu af fundinum þegar Einar K. Guðfinsson, forseti Alþingis, tilkynnti um hann við upphaf þingfundar í dag.

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, furðaði sig á því að ekki hafi verið boðað til fundar í þeirri viku sem leið, þegar engir þingfundir fóru fram. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna tók í sama streng og lýsti fyrir furðu sinni á því að svona hlutir væru ekki ræddir fyrr en á síðustu stundu.

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, var einnig ósáttur með stuttan fyrirvara. „Hvenær er hann? Ég þarf að sækja barn á leikskóla,“ sagði Guðmundur í ræðustól Alþingis.

Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, furðaði sig á því að þegar tilkynnt var um fundinn voru hvorki Bjarni Benediktsson né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þingsal. „Ég vona að það komi eitthvað viturlegra úr þessum fundi en undanfarnar vikur,“ sagði Birgitta sem lagði til að gert yrði þinghlé á meðan formenn ræddu saman.

Róbert Marshall, þingflokssformaður Bjartrar Framtíðar, sagði Sigmund Davíð hafa verið upptekinn við að vera lukkudýr hókkíliðsins í Edmonton, en Vísir greindi frá ánægju hokkíaðdáenda með veru foræstisráðherra á leik Edmonton Oilers, sem vannst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×