Lífið

Game of Thrones-leikari út úr skápnum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Írski leikarinn Kristian Nairn leikur risann Hodor í þáttunum Game of Thrones. Hann segir í viðtali við vefsíðuna WinterIsComing.net að hann sé samkynhneigður.

"Ég hef aldrei falið kynhneigð mína frá neinum allt mitt líf og ég hef beðið eftir að einhver spyrji mig út í þetta í viðtölum því þetta er ekki eitthvað sem maður ber upp að fyrra bragði. Ég hef reynt að leiða spurningar í þessa átt nokkrum sinnum en án árangurs," segir Kristian en Hodor er afar vinsæll meðal samkynhneigðra.

Fjórða þáttaröð Game of Thrones er frumsýnd 6. apríl á HBO í Bandaríkjunum en hluti hennar var tekinn upp á Íslandi.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×