Formúla 1

Formúlan hefst á morgun | Svona er staðan á liðunum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hópmynd af ökumönnum fyrir tímabilið 2013.
Hópmynd af ökumönnum fyrir tímabilið 2013. Vísir/Getty
Æfingar fyrir ástralska kappaksturinn hefjast á morgun, því er tímabært að líta yfir stöðuna í Formúlu 1 fyrir komandi tímabil.

Hver ökumaður hefur valið sér einkennisnúmer til að hafa út feril sinn. Þó hefur heimsmeistari ökuþóra þann möguleika að notast við töluna 1, en þarf þess þó ekki. Áður fóru númerin eftir gengi á fyrra tímabili. 

Rásmarkið í Melbourne, ÁstralíuVísir/Getty
Hver er hvar og hvernig gekk á æfingum í vetur?

Red Bull:

Ökumenn (valið númer): Sebastian Vettel (1) - Daniel Ricciardo (3)

Nafn bíls: RB10

Bíllinn hefur valdið liðinu vandræðum á æfingum fyrir tímabilið. Red Bull segir þó að nú sé liðið búið að leysa sinn vanda. Vélaframleiðandinn Renault verður nú að finna lausn á sínum vanda samkvæmt Christian Horner, keppnisstjóra Red Bull.

Liðið hefur sigrað keppni bílasmiða síðustu fjögur tímabil og kann því sitthvað í faginu. Of snemmt er að afskrifa meistarana strax.



Mercedes:

Ökumenn (valið númer): Nico Rosberg (6) - Lewis Hamilton (44)

Nafn bíls: W05

Mercedes hefur á góðu gengi að fagna á æfingum fyrir tímabilið. Veðbankarnir gera ráð fyrir að Lewis Hamilton verði heimsmeistari ökuþóra. Liðið hefur þó varað við of mikilli bjartsýni. Báðir ökumenn liðsins hafa sagst vera hungraðir í titil en Vettel gæti haft eitthvað við því að segja þegar líður á tímabilið.



Ferrari:

Ökumenn (valið númer): Kimi Raikkonen (7) - Fernando Alonso (14)

Nafn bíls: F14T

Ökumennirnir eru báðir fyrrverandi heimsmeistarar, þeir eru reynslumesta samsetningin. Raikkonen kom aftur til Ferrari fyrir tímabilið. Hann sigraði ástralska kappaksturinn í fyrra á Lotus bíl sínum. Langt er liðið síðan Ferrari vann titil síðast en það var 2007 þegar Raikkonen varð heimsmeistari ökuþóra.

Miklar væntingar eru innan liðsins fyrir tímabilinu, markmiðið er sett á verðlaun strax í fyrstu keppni. Bíllinn hefur virkað vel á æfingum, hann þykir helst til gráðugur í eldsneyti, það gæti valdið vandræðum í upphafi tímabils. Ferrari mun eflaust leysa þann vanda þegar líður á

Toro Rosso bíllinn á æfingum í Bahrain.Vísir/Getty
Lotus:

Ökumenn (valið númer): Romain Grojean (8) - Pastor Maldonado (13)

Nafn bíls: E-22

Lotus sleppti fyrstu æfingavikunni. Liðið valdi að verja meiri tíma í að undirbúa bílinn. Svo virðist sem það hafi verið röng ákvörðun, annað getur þó komið í ljós. Helsta einkenni bílsins er að hann er með klofna trjónu, hún hefur hlotið nafnið fílabeins trjónan.

Pastor Maldonado kom til liðsins fyrir tímabilið frá Williams. Hann kemur til liðsins með gríðarlega fjármuni frá bakhjörlum sínum. Hann er umdeildur ökumaður og blóðheitur. Hann sakaði Williams til dæmis um að eiga við bíl sinn til að hægja á honum í fyrra. Hann baðst svo afsökunnar á ummælunum, en dró þau ekki til baka.



McLaren:

Ökumenn (valið númer): Kevin Magnussen (20) - Jenson Button (22)

Nafn bíls: MP4-29

McLaren kom vel út úr æfingunum og virðist bíllinn áreiðanlegur. Mercedes vélin um borð virkar vel og verður hugsanlega til þess að skapa þeim liðum sem hana hafa, forskot í upphafi tímabils. McLaren átti versta tímabil sitt síðan 1980 í fyrra. Ljóst er að Ron Dennis var kallaður til með það fyrir augum að koma liðinu aftur á toppinn.

Ökumenn liðsins eru að vissu leyti algjörar andstæður, annars vegar Button, reynslumikill og fyrrum heimsmeistari. Hins vegar Kevin Magnussen er svo nýliði og lítt reyndur, hann er ný kominn með leyfi til að keppa í Formúlu 1. Forvitnilegt verður að sjá hvort hann nái að stríða Button á tímabilinu.



Force India:

Ökumenn (valið númer): Sergio Perez (11) - Nico Hulkenberg (27)

Nafn bíls:VJM07

Með gjörbyltar reglur og nýjan bíl vonast Force India til að komast á verðlaunapall á tímabilinu. Liðið vonast til geta hagnast á hugsanlegri uppstokkun á getu liðanna. Liðið hefur verið stöðugt á æfingum og farið hægt og rólega í að læra á bílinn.

Ökumenn liðsins eru lítt reyndir, þó Sergio Perez hafi verið hjá McLaren á síðasta tímabili, var hann látinn fara vegna slaks gengis. Nico Hulkenberg var hjá Sauber í fyrra en snýr nú aftur til Force India. 

Williams-bíllinn.Vísir/Getty
Sauber:

Ökumenn (valið númer): Esteban Gutierrez (21) - Adrian Sutil (99)

Nafn bíls: C33

Sauber virðist vera með áreiðanlegustu liðum. Ferrari vélin um borð greinilega að skila sínu því Sauber setti met á lokadegi æfinganna og ók einum og sama bílnum 177 hringi. Það verður því áhugavert að sjá hvað Sutil sem kemur til liðsins frá Force India gerir á tímabilinu. Gutierrez er að hefja sitt annað keppnistímabil með Sauber.



Toro Rosso:

Ökumenn (valið númer): Jean-Eric Vergne (25) - Daniil Kvyat (26)

Nafn bíls: STR9

Toro Rosso er systurlið Red Bull, Toro Rosso er þýðing á Red Bull úr ensku yfir á ítölsku. Liðið hefur verið með Ferrari vélar áður en er nú með Renault vél í fyrsta skipti.

Vergne fékk ekki tækifæri hjá Red Bull liðinu. Liðsfélagi hans frá því í fyrra, Ricciardo fékk tækifærið. Vergne hefur lýst þessu sem gæfuspori. Hann hafi hvort eð er ekki verið tilbúinn en gæti séð fyrir sér að aka hjá einu af stóru liðunum eftir þetta tímabil.



Williams:

Ökumenn (valið númer): Felipe Massa (19) - Valtteri Bottas (77)

Nafn bíls: FW36

Williams-liðið er vongott um að eiga gott tímabil. Mercedes vélin hefur virkað vel hjá þeim eins og örðum. Reynsluboltinn Felipe Massa kom til liðsins fyrir tímabilið og hefur verið mikil búbót þar á bæ. Valtteri Bottas er að hefja sitt annað ár með liðinu og stefnir á að keppa af hörku við Massa.

Massa segist ánægður með breytinguna og vonar að hann geti hjálpað liðinu að ná góðum árangri í ár. Hann hefur aðlagast liðinu vel og líður vel á nýjum stað. Hann ók áður hjá Ferrari.

Caterham bíllinn við æfingar í BahrainVísir/Getty
Marussia:

Ökumenn (valið númer): Max Chilton (4) - Jules Bianchi (17)

Nafn bíls: MR03

Marussia hefur gengið vel á æfingum, liðið trúir því að það geti náð í stig í keppnum ársins. Hugsanlega verður samkeppnin um stigin því enn harðari í dag. Marussia er eina liðið með báða ökumenn síðasta tímabils við stýrið í ár.



Caterham:

Ökumenn (valið númer): Marcus Ericsson (9) - Kamui Kobayashi (10)

Nafn bíls: CT05

Caterham átti erfiðan vetur. Hugsanlega hefur bilið milli Caterham og Marussia aukist. Það myndi þýða að Caterham er lakasta liðið ef miðað er við síðasta tímabil. Hins vegar gæti allt eins verið nýtt lið aftast.

Það er óvissa um nánast allt á komandi tímabili. Svörin koma ekki fyrr en á laugardag í tímatökunni og svo á sunnudag í keppninni sjálfri.


Tengdar fréttir

Sögulegur sigur hjá Vettel

Þjóðverjinn Sebastian Vettel varð í kvöld fyrsti maðurinn frá upphafi til að vinna átta mót í röð á sama tímabilinu í Formúlu 1 kappakstrinum er hann bar sigur úr býtum í Texas í kvöld.

Breyttar aðstæður í Formúlu 1

Mestu reglubreytingar innan Formúlu 1 í aldarfjórðung hafa tekið gildi. Þær munu bylta ýmsu varðandi uppbyggingu Formúlu 1 bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×