Lífið

Finnur sig í tískunámi

Amanda Bynes er á batavegi
Amanda Bynes er á batavegi
Leikkonan unga Amanda Bynes er að finna sig í tískunámi við Fashion Institute of Design and Merchandising

Bynes ku vera komin með sjálfstraust og er óhrædd við að halda fyrirlestra fyrir bekkinn sinn. Einnig hefur hún vingast við bekkjarfélaga sína. 

Bynes er sögð á batavegi eftir að hafa verið nauðungarvistuð á geðdeild fyrr í sumar. Þá var Bynes greind með geðklofa og geðhvörf og mun dvelja á spítala til ársins 2015.

Bynes var handekin og nauðungarvistuð á geðdeild eftir að hafa kveikt bál í innkeyrslu húss í Thousand Oaks í Kaliforníu, en leikkonan er uppalin í bænum. Hún hafði áður verið handtekin fyrir að kasta hasspípu, sem búin var til úr gleri, út um glugga á blokkaríbúð sinni í New York. 



Meðferð leikkonunnar gengur vel en Bynes segist hætt að reykja marijúana og er að láta fjarlægja húðflúr. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×