Ekki betra að taka mikið lýsi Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2014 14:19 Vísir/Stefán/HÍ
Guðrún Valgerður Skúladóttir, vísindamaður við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur unnið að rannsóknum á áhrifum Ómega þrjú fitusýra á gáttatif eftir hjartaaðgerðir. Það er algengasta tegund hjartsláttartruflana. Hún segir að hvorki sé hollt að innbyrða of lítið af fitusýrum, né of mikið. Orsakir gáttatifs eru ekki kunnar og síðustu ár hafa víða verið gerðar rannsóknir á því hvort hægt sé að meðhöndla það með því að gefa sjúklingum Ómega þrjú fitusýrur sem hafa sýnt sig að eru bólguhemjandi. Niðurstöður úr rannsókn sem Guðrún hefur staðið að síðustu ár hér á landi voru nokkuð óvæntar. Þær sýna að hvorki sé gott að innbyrða of lítið af fitusýrum né of mikið. Guðrún var gestur í bítinu á Bylgjunni í morgun. „Við sáum að þeir sem voru með mjög lítið af þessum Ómega 3 fitusýrum og mjög mikið fengu frekar gáttatif en þeir sem voru með Ómega fitusýrur í lagi,“ sagði Guðrún. „Það er með þetta eins og margt annað, það þarf ekki mikið. Það þarf að vera til staðar og þá hefur það kannski jákvæð áhrif,“ sagði Guðrún. „Ég held að við vitum ekki nákvæmlega hversu mikið rétta magnið er. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin ráðleggur einstaklingi að taka 300 til 500 milligrömm af Ómega 3 fitusýrum á dag. Þetta er sá dagskammtur sem er ráðlagður á lýsishylkjum. Ef við tökum fljótandi lýsi þá er ráðlagt að taka eina teskeið, sem eru um fimm millilítrar. Það inniheldur um 800 milligrömm af Ómega 3 fitusýrum.“ Þá telur Guðrún ekki ráðlagt að taka heila matskeið af lýsi á dag.
Mest lesið Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segir veginn ekki hafa gefið sig Innlent Fleiri fréttir Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Afmælisstemming hjá Eldstó á Hvolsvelli Líst illa á áfengissölu Hagkaups: „Ég tel bara að það þurfi að fara að lögum“ Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar „Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Sjá meira