Tónlist

Uppgjör á Sónar Reykjavík

Kristín Larsdóttir Dahl og Hafrún Alda Karlsdóttir hjá Bast magazine komu alla leið frá Kaupmannahöfn til að fara á Sónar, sem haldið var um helgina.

„Við þjófstörtuðum festivalinu og héldum Bast magazine x Grotta Zine upphitunarpartý á Paloma á miðvikudagskvöldinu. Það komu um 300 eða 400 manns og það var tryllt stuð allan tímann,“ segir Hafrún, en þetta er í fyrsta skipti sem Bast fer á Sónar Reykjavík.

„Við erum ótrúlega ánægðar, hátíðin stóðst allar okkar væntingar og meira en það. Við komum pottþétt aftur að ári liðnu,“ bætir hún við.

Kristín Larsdóttir Dahl og Hafrún Alda Karlsdóttir
Að sögn Hafrúnar og Kristínar voru mörg atriði sem stóðu uppúr.

„HE, James Holden, Gusgus, Starwalker, Kölsh, When Saints go Machine, Cell7, John Hopkins og Bonobo voru öll tryllt,“ segir Kristín og bætir við að bílakjallarinn hafi komið sér reglulega á óvart.

„Bílakjallarinn var algjör snilld en þar sáum við til dæmis Evian Christ, Kenton slash Demon og DJ Yamaho. Svo má ekki gleyma Hermigervli sem er algjör partí-stuðpinni.“

Á tónleikum GusGus


En er Sónar skemmtilegri en Hróaskelda? 

„Það er erfitt að bera þessar hátíðir saman. Sónar Reykjavík fókuserar náttúrlega meira á raftónlist og eru með fleiri íslenska og óþekkta tónlistarmenn á uppleið sem okkur hjá Bast magazine finnst alltaf spennandi að fá að fylgjast með. Hróaskelda er stór útihátið með allt mögulegt í boði fyrir alla sem er líka alltaf ótrúlega gaman að kíkja á. Við mælum með að fólk kíkji á sem flest tónlistar festivöl því það er ekkert skemmtilegra en að dansa við góða tónlist með skemmtilegu fólki og uppgötva nýja tónlist í leiðinni,“ segir Kristín.

Fleiri myndir og nánari umfjöllun um Sónar má sjá hér.

Ágústa Sveinsdóttir
Rósa Birgitta Ísfeld
Óðinn Bjarni Hammer og Róbert Róbertsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×